Gunnar Þór Gunnarsson varnarmaður KR missir af bikarúrslitaleiknum gegn Stjörnunni á Laugardalsvelli í dag en allir aðrir leikmenn liðsins eru heilir. KR verður einnig án Rhys Weston sem rifti samningi sínum við félagið í vikunni.
Orðrómur hefur verið í gangi þess efnis að Bjarni Guðjónsson hafi meiðst á æfingu KR í vikunni og myndi missa af leiknum og Rhys Weston myndi byrja í dag. Pétur Pétursson aðstoðarþjálfari KR segir það ekki rétt.
,,Það eru allir heilir í dag," sagði Pétur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 núna í hádeginu.
,,Það er alltaf smá vesen í fótboltaliðum, ef það væri ekki þá væri eitthvað mikið að. Gunnar Þór er meiddur og ekki með og Rhys ekki heldur í dag," bætti hann við og sagði að allir aðrir væru klárir í slaginn fyrir leikinn í dag.



