Arnar Darri Pétursson verður í marki Stjörnunnar í bikarúrslitunum gegn KR klukkan 16:00 í dag.
Arnar Darri hefur varið mark Stjörnunnar í öllum bikarleikjum liðsins í sumar og hann heldur því áfram í dag en Ingvar Jónsson verður á bekknum.
Arnar Darri hefur varið mark Stjörnunnar í öllum bikarleikjum liðsins í sumar og hann heldur því áfram í dag en Ingvar Jónsson verður á bekknum.
Danski kantmaðurinn Kennie Chopart mun leika í vinstri bakverði þar sem Hörður Árnason verður ekki með vegna meiðsla. Chopart lék í fyrsta skipti í bakverði í 4-3 tapinu gegn Grindavík um síðustu helgi.
Daníel Laxdal og Alexander Scholz verða í hjarta varnarinnar en Baldvin Sturluson mun leika aftarlega á miðjunni.
Fréttir af byrjunarliði KR munu birtast um leið og þær berast.
Byrjunarlið Stjörnunnar:
Arnar Darri Pétursson
Jóhann Laxdal
Daníel Laxdal
Alexander Scholz
Kennie Chopart
Baldvin Sturluson
Atli Jóhannsson
Mark Doninger
Halldór Orri Björnsson
Ellert Hreinsson
Garðar Jóhannsson
Varamenn:
Ingvar Jónsson
Tryggvi Sveinn Bjarnason
Bjarki Páll Eysteinsson
Hörður Árnason
Sindri Már Sigurþórsson
Gunnar Örn Jónsson
Snorri Páll Blöndal


