Þrír Grindvíkingar í banni í botnslagnum í kvöld
Þrír leikmenn Grindavíkur verða í banni þegar liðið mætir Selfyssingum í botnslag í Pepsi-deildinni í kvöld.
Marko Valdimar Stefánsson, Alexander Magnússon og Pape Mamadou Faye taka allir út leikbann í leiknum í kvöld.
Fyrirliði Selfyssinga, Stefán Ragnar Guðlaugsson, verður einnig fjarri góðu gamni í leiknum en hann er líka í banni.
Fylkir mætir Val og verður Árbæjarliðið án Andra Þórs Jónssonar og Ásgeirs Barkar Ásgeirssonar sem eru í banni líkt og miðjumaðurinn Haukur Páll Sigurðsson hjá Val.
Sam Hewson leikur ekki með Fram gegn Breiðabliki og Ingvar Kale getur ekki leikið með Blikum þar sem hann tekur út síðari leik sinn í tveggja leikja banni.
Jóhann Birnir Guðmundsson verður ekki með Keflavík sem heimsækir ÍBV þar sem hann tekur út leikbann. Slæmt fyrir Keflvíkinga enda Jóhann verið einn þeirra allra besti maður í sumar.

Athugasemdir
Nýjustu fréttirnar
18:00