Rio Ferdinand, varnarmaður Manchester United, verður frá næstu þrjár til fjórar vikur vegna meiðsla sem hann hlaut á æfingu um helgina.
United mætir Everton í fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni.
United mætir Everton í fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni.
Nú er Nemanja Vidic eini heili miðvörðurinn hjá United en serbneski leikmaðurinn hefur ekki spilað mótsleik síðan hann meiddist illa í desember í fyrra.
Fyrir á meiðslalista United eru Phil Jones, Chris Smalling og Jonny Evans en Michael Carrick gæti spilað í hjarta varnarinnar í kvöld.
Ekkert lið í ensku úrvalsdeildinni var eins óheppið með meiðsli á síðasta tímabili eins og Manchester United samkvæmt vefsíðunni physioroom.com.




