Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 20. ágúst 2012 15:30
Elvar Geir Magnússon
Bestur í 1. deild: Stundum semur leikmanni og þjálfara ekki
Leikmaður 16. umferðar: Davíð Einarsson (Höttur)
Davíð fagnar einu af þremur mörkum sínum á föstudag.
Davíð fagnar einu af þremur mörkum sínum á föstudag.
Mynd: Grétar Reynisson
Davíð í baráttunni.
Davíð í baráttunni.
Mynd: Grétar Reynisson
Höttur og ÍR höfðu sætaskipti í fallbaráttu 1. deildar á föstudagskvöld þegar Höttur vann glæsilegan 5-1 sigur. ÍR-ingar eru nú í tólfta og neðsta sæti en Höttur í því ellefta. Davíð Einarsson skoraði þrennu fyrir Hött í leiknum og er leikmaður umferðarinnar.

Davíð er tvítugur og er hjá Hetti á lánssamningi frá KR. Í upphafi sumars var hann hjá ÍR á láni en fór til Hattar í síðasta glugga. Þrennan hans á föstudag var því blaut tuska í andlit Breiðhyltinga

Best í stöðunni að finna nýtt félag
„Þetta var mikill sigur fyrir okkur og mig persónulega. Þetta var gott fyrir andann og komandi baráttu. Þetta gefur sjálfstraust fyrir komandi leiki og færir okkur þá trú að við getum haldið okkur í deildinni," segir Davíð.

„Það er aldrei leiðinlegt að setja þrennu. Þó mótherjinn hafi verið ÍR þá var maður ekki að pæla mikið í því heldur fyrst og fremst að hugsa um liðið og að því gangi vel."

„Ég var lánaður til ÍR snemma í sumar en tími minn þar var erfiður. Stundum kemur leikmanni og þjálfara ekki saman. Stundum er það bara þannig. Ég fór aftur til KR og var svo lánaður til Hattar," segir Davíð sem vill þó ekki fara út í það nánar hvers vegna hann yfirgaf ÍR.

„Það var meira sem spilaði inn í sem er milli okkar tveggja (hans og Andra Marteinssonar, þjálfara ÍR) og félagsins. Mér fannst það besta í stöðunni að finna mér nýtt félag. Mér líður mjög vel hjá Hetti, þetta gæti ekki verið betra hérna á Egilsstöðum. Veðrið hefur ekki verið slæmt og þetta er mjög gott."

Mjög góð helgi
Nokkrir leikmenn ÍR töluðu við hann eftir leikinn.

„Ég á nokkra félaga í þessu liði en annars var þetta ekki mikið spjall. Þeir sögðu að þetta væri bara heppni en einn góður félagi minn óskaði mér til hamingju. Það var vel þegið."

Það er hörkubarátta framundan hjá Hetti að halda sæti sínu í deildinni, „Það er strembin barátta framundan, við eigum KA á þriðjudaginn og svo Víking Reykjavík heima á laugardag. Allir leikir eru úrslitaleikir um sæti í þessari deild," segir Davíð.

KR-ingar urðu einnig bikarmeistarar um helgina svo Davíð gat fagnað tvöfalt. „Þetta var mjög góð helgi... fyrir utan það kannski að Tottenham tapaði!"

Sjá einnig:
Leikmaður 15. umferðar - Mark Tubæk (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 14. umferðar - Halldór Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 13. umferðar - Evan Schwartz (Víkingur R.)
Leikmaður 12. umferðar - Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Leikmaður 11. umferðar - Chukwudi Chijindu (Þór)
Leikmaður 9. umferðar - Dominic Furness (Tindastóll)
Leikmaður 8. umferðar - Halldór Smári Sigurðarson (Víkingur R.)
Leikmaður 7. umferðar - Darren Lough (KA)
Leikmaður 6. umferðar - Björn Pálsson (Víkingur Ó.)
Leikmaður 5. umferðar - Illugi Þór Gunnarsson (Fjölnir)
Leikmaður 4. umferðar - Nigel Quashie (ÍR)
Leikmaður 3. umferðar - Ásgeir Aron Ásgeirsson (Fjölnir)
Leikmaður 2. umferðar - Robin Strömberg (Þór)
Leikmaður 1. umferðar - Birkir Pálsson (Höttur)
Slapp
banner