Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 22. ágúst 2012 17:00
Magnús Már Einarsson
Bestur í 1. deild: Maður var ekkert að henda handsprengjum
Bestur í 17. umferð - Ármann Pétur Ævarsson (Þór)
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
,,Ef allt hefði gengið upp hjá okkur hefðum við getað unnið 4-0. Mér fannst við vera töluvert sterkari heilt yfir on ég er ánægður með sigurinn," sagði Ármann Pétur Ævarsson miðjumaður Þórs við Fótbolta.net í dag en hann er leikmaður 17. umferðar í 1. deild karla.

Ármann Pétur skoraði bæði mörkin þegar topplið Þórs sigraði ÍR 2-1 á útivelli í gærkvöldi. Þórsarar hafa verið á miklu skriði að undanförnu en þeir hafa unnið fimm leiki í röð í fyrstu deildinni eftir að hafa lítið spilað þar í júlí vegna þátttöku í Evrópudeildinni.

,,Við tókum þessari Evrópukeppni með opnum hug og það skilaði sér í því að við fórum áfram. Það eina sem það hafði áhrif á er að við drógumst aftur úr í leikjafjölda í deildinni en við nýttum okkur það bara. Ég held að við höfum bara notið góðs af þessu."

Þórsarar féllu í fyrra úr Pepsi-deildinni en þeir telja sig vera með lið sem á að vera á meðal þeirra bestu.

,,Að sjálfsögðu viljum við trúa því. Við sóttum okkur 21 stig í fyrra, við tókum bikarævintýri og fannst við eiga skilið að vera aðeins ofar en svona endaði þetta og við verðum að taka því."

Eftir mörkin tvö í gær er Ármann Pétur kominn með sex mörk í sumar. Ármann byrjaði tímabilið á bekknum hjá Þór en vann sig síðan inn í liðið.

,,Þetta er allt að koma heim og saman og ég er sáttur núna. Maður er aldrei ánægður utan liðs eða utan hóps, ef þú ert ánægður þá, þá getur þú hætt þessu. Auðvitað var maður svekktur en maður var ekkert að henda handsprengjum hingað og þangað. Maður þarf bara að sanna sig í leikjum og æfingum, það er eini vettvangurinn."

Næsti leikur Þórs er nágrannslagur gegn KA á laugardag. KA sigraði fyrri leik liðanna í sumar 3-2 og Þórsarar hafa því harma að hefna.

,,Þetta eru mjög skemmtilegir leikir, sérstaklega ef við vinnum, annars getur þetta verið hundleiðinlegt. Ég er orðinn svo gamall að þetta er orðið nánast eins og hver leikur en þetta er samt aðeins stærra en hinir leikirnir. Við eigum harma að hefna síðan í fyrri leiknum. Það var algjör óþarfi hjá okkur að tapa þeim leik en við mætum brattari til leiks núna."

Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs og Halldór Áskelsson aðstoðarþjálfari verða í leikbanni á laugardag en Ármann segir að það muni ekki skipta máli fyrir Þórsari.

,,Þetta hefur engin áhrif á okkur. Þeir geta bara fengið sér kaffi og súkkulaði og horft á leikinn, þeir þurfa ekkert að vera að æsa sig," sagði Ármann léttur í bragði að lokum.

Sjá einnig:
Leikmaður 16. umferðar - Davíð Einarsson (Höttur)
Leikmaður 15. umferðar - Mark Tubæk (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 14. umferðar - Halldór Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 13. umferðar - Evan Schwartz (Víkingur R.)
Leikmaður 12. umferðar - Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Leikmaður 11. umferðar - Chukwudi Chijindu (Þór)
Leikmaður 9. umferðar - Dominic Furness (Tindastóll)
Leikmaður 8. umferðar - Halldór Smári Sigurðarson (Víkingur R.)
Leikmaður 7. umferðar - Darren Lough (KA)
Leikmaður 6. umferðar - Björn Pálsson (Víkingur Ó.)
Leikmaður 5. umferðar - Illugi Þór Gunnarsson (Fjölnir)
Leikmaður 4. umferðar - Nigel Quashie (ÍR)
Leikmaður 3. umferðar - Ásgeir Aron Ásgeirsson (Fjölnir)
Leikmaður 2. umferðar - Robin Strömberg (Þór)
Leikmaður 1. umferðar - Birkir Pálsson (Höttur)
Slapp
banner