Bestur í 18. umferð - Elvar Ægisson (Höttur)
Elvar Ægisson, leikmaður Hattar, skoraði tvö mörk og átti stórleik á kantinum í 5-2 sigri liðsins á Víkingi R. um helgina. Hann er leikmaður 18. umferðar í 1. deild karla hér á Fótbolta.net.
,,Ég er ánægður með þetta. Þetta var góður leikur og einn af betri leikjunum í sumar hjá okkur," segir Elvar við Fótbolta.net í dag.
,,Ég er ánægður með þetta. Þetta var góður leikur og einn af betri leikjunum í sumar hjá okkur," segir Elvar við Fótbolta.net í dag.
Hattarmenn hafa gert fjögur markalaus jafntefli á Vilhjálmsvelli í sumar en í síðustu tveimur leikjum hefur fjörið verið meira þar sem liðið hefur skorað fimm mörk í báðum leikjunum.
,,Þetta voru fjörugir leikir þarna en mörkin voru ekki að detta. Þetta er byrjað að detta inn núna. Við erum mikið búnir að vera að skjóta í tréverkið og það er búið að vera að bjarga á línu hjá okkur oft. Það er gaman þegar þetta fer inn loksins."
Með sigrinum á laugardag komst Höttur upp úr fallsæti en liðið er nú tveimur stigum á undan Leikni R. þegar fjórar umferðir eru eftir.
,,Það er gríðarlega mikilvægt að komast úr þessu fallsæti en þetta verða hörkuleikir sem eftir eru. Við vitum alveg að við höfum getuna í þetta en það er hausinn sem skiptir mestu máli núna."
Hattarmenn lentu í lægð um mitt mót eftir að þeir misstu enska markvörðinn Ryan Allsop sem var frábær í fyrstu leikjunum.
,,Það var áfall að missa hann. Hann er gríðarlega góður, einn besti markvörður sem ég hef séð. Núna erum við komnir með ágætis markmann líka," sagði Elvar en hinn serbneski Veljko Bajkovic er nú kominn í markið.
,,Hann talar reyndar ekki stakt orð í ensku. Hann kann að segja keeper, ole og bravo og síðan kann hann nöfnin á öftustu fjórum. Hann talar síðan á serbnesku þegar hann er að blóta."
Höttur er að taka þátt í fyrstu deildinni í fyrsta skipti og mikill uppgangur er í fótboltanum á Egilsstöðum.
,,Þetta er allt að koma hérna á Austurlandi. Eysteinn (Húni Hauksson) er búinn að gera góða hluti fyrir fótbotlann og áhorfendum er alltaf að fjölga. Þetta eru flest allt heimamenn í liðinu og við höfum alltaf haft trú á þessum mannskap," sagði Elvar.
Sjá einnig:
Leikmaður 17. umferðar - Ármann Pétur Ævarsson (Þór)
Leikmaður 16. umferðar - Davíð Einarsson (Höttur)
Leikmaður 15. umferðar - Mark Tubæk (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 14. umferðar - Halldór Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 13. umferðar - Evan Schwartz (Víkingur R.)
Leikmaður 12. umferðar - Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Leikmaður 11. umferðar - Chukwudi Chijindu (Þór)
Leikmaður 9. umferðar - Dominic Furness (Tindastóll)
Leikmaður 8. umferðar - Halldór Smári Sigurðarson (Víkingur R.)
Leikmaður 7. umferðar - Darren Lough (KA)
Leikmaður 6. umferðar - Björn Pálsson (Víkingur Ó.)
Leikmaður 5. umferðar - Illugi Þór Gunnarsson (Fjölnir)
Leikmaður 4. umferðar - Nigel Quashie (ÍR)
Leikmaður 3. umferðar - Ásgeir Aron Ásgeirsson (Fjölnir)
Leikmaður 2. umferðar - Robin Strömberg (Þór)
Leikmaður 1. umferðar - Birkir Pálsson (Höttur)


