banner
   fös 31. ágúst 2012 17:54
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefur Southampton 
Gaston Ramirez til Southampton (Staðfest)
Gaston Ramirez.
Gaston Ramirez.
Mynd: Getty Images
Southampton var að staðfesta á vef sínum rétt í þessu að Gaston Ramirez landsliðsmaður frá Úrúgvæ sé genginn til liðs við félagið frá Bologna á Ítalíu.

Ramirez er 21 árs gamall sóknamaður sem mörg félög hafa verið á höttunum eftir en Southampton hafði betur í baráttunni við önnur ensk lið sem og ítölsk.

Á vef Southampton segir að málið hafi tekið skjótt yfir en það hefur verið í vinnslu síðustu tíu daga og í dag kom loksins atvinnuleyfi fyrir hann svo hægt var að ganga frá félagaskiptunum.

Ramirez skrifaði undir fjögurra ára samning við Southampton en félagið vill ekki gefa upp hvert kaupverðið er.
Athugasemdir
banner
banner
banner