Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 11. september 2012 12:00
Magnús Már Einarsson
UEFA frystir verðlaunagreiðslur til 23 félaga
Atletico Madrid er á listanum.
Atletico Madrid er á listanum.
Mynd: Getty Images
UEFA hefur ákveðið að frysta greiðslur til 23 félaga sem áttu að fá greitt fyrir þátttöku í Evrópukeppnum.

Félögin hafa ekki náð að fara eftir nýjum reglum sem UEFA hefur sett um fjárhag félaga.

UEFA hefur skoað fjárhag félaga síðan tímabilið 2011/2012 og þessi félög stóðust ekki þær kröfur.

Spænsku félögin Atletico Madrid og Malaga eru á listanum yfir þessi 23 félög en listann má sjá í heild sinni hér að neðan.

Félögin 23:
FK Borac Banja Luka
FK Sarajevo
FK Željezničar
PFC CSKA Sofia
HNK Hajduk Split
NK Osijek
Atletico Madrid
Málaga CF
Maccabi Netanya FC
FK Shkendija 79
Floriana FC
FK Budućnost Podgorica
FK Rudar Pjevlja
Ruch Chorzów
Sporting Clube de Portugal
FC Dinamo Bucureşti
FC Rapid Bucureşti
FC Vaslui
FC Rubin Kazan
FK Partizan
FK Vojvodina
Eskişehirspor
Fenerbahçe SK
Athugasemdir
banner