Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
   lau 22. september 2012 18:37
Hafliði Breiðfjörð
Milos Glogovac: Gaman að fá tvö lið af norðurlandinu upp
Milos í leik með KF.
Milos í leik með KF.
Mynd: Fótbolti.net - Þorvaldur Þorsteinsson
,,Fyrri hálfleikur var jafn og í seinni hálfleik komumst við 1-0 yfir og byrjum vel. Mjög gott lið Hamars skorar svo tvö mörk en við skorum eitt mark í viðbót sem tryggir okkur upp í 1. deild," sagði Milos Glogovac fyrirliði KF eftir að liðið gerði 2-2 jafntefli við Hamarí Hveragerði í dag.

,,Mér finnst við hafa spilað vel í allt sumar og allir strákarnir hafa staðið sig vel. Þetta er frábært fyrir okkur," hélt hann áfram en var hann ekki orðinn hræddur þegar Hamar komst í 2-1?

,,Við sóttum bara til að vinna leikinn en jafntefli var fínt fyrir okkur. Nú þurfum við bara að einbeita okkur að næsta tímabili í 1. deild. Þetta er frábært fyrir Siglufjörð og Ólafsfjörð. Sjáðu fólkið sem kemur hingað á eftir okkur. Þetta er frábært."

Milos lék áður með Víkingi en fór fyrir tveimur árum til KF, hvernig hefur honum líkað?

,,Bara flott, ég spilaði síðasta ár og líka í ár. Þetta er frábært. Þetta eru allt strákar sem eru frábærir vinir, og þjálfarinn Lárus Orri er frábær og stjórnin. Allir vinna sem einn og það er gaman að klára þetta verkefni að fara upp. Það sama má segja um Völsung sem er mjög gott lið, það er gaman að fá tvö lið af norðurlandinu upp."
Athugasemdir
banner