Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
   lau 22. september 2012 19:09
Hafliði Breiðfjörð
Þórður Birgisson: Vorum stressaðir fyrir þennan leik
Þórður Birgisson.
Þórður Birgisson.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
,,Þetta var ótrúlegt. Við vorum svolítið stressaðir fyrir þennan leik. Við töluðum um að vera það ekki en í svona leikjum er það óhjákvæmilegt," sagði Þórður Birgisson framherji KF sem skoraði jöfnunarmarkið gegn Hamar í dag og tryggði þeim þar með sæti í 1. deildinni að ári.

,,Við vorum í kjörstöðu fyrir þennan leik en höfum aldrei átt auðvelda leiki hérna í Hveragerði. Það hefur alltaf verið erfitt og sem betur fer héldum við haus. Það er það sem réði úrslitum, við náðum að halda haus."

Nokkuð mikil barátta var í leiknum og leikmenn lágu nokkuð í grasinu eftir harkalegar tæklingar.

,,Það eru alltaf átök í 2. deildinni, mér fannst ekkert meiri átök í þessum leik en öðrum leikjum hjá okkur. Þetta er alltaf mikil barátta og mér finnst ekkert meira í þessum leik en öðrum."

Þórður skoraði tvö mörk seint í leiknum en það fyrra var dæmt af eftir að dómarinn flautaði það á en fundaði svo með línuverði og komst að þeirri niðurstöðu að það skildi ekki standa.

,,Ég sá ekki almennilega rangstöðumarkið, en mér er alveg sama, þetta hafðist. Við gerðum jafntefli, það dugði okkur og við fórum upp, frábært."

Nánar er rætt við Þórð í sjónvarpinu að ofan en þar svarar hann spurningum um afhverju hann neitaði að skipta í sterkari lið í félagaskiptaglugganum í júlí og segist ekki hafa tekið ákvörðun um framtíð sína núna.
Athugasemdir
banner