Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 03. október 2012 22:13
Elvar Geir Magnússon
Hodgson við lestarfarþega: Landsliðsferli Rio lokið
Mynd sem birtist í Daily Mirror á morgun.
Mynd sem birtist í Daily Mirror á morgun.
Mynd: Daily Mirror
Rio Ferdinand spilar ekki fleiri landsleiki fyrir England. Þetta sagði landsliðsþjálfarinn Roy Hodgson við lestarfarþega í London samkvæmt baksíðufrétt Daily Mirror sem kemur út á morgun.

Hodgson lenti í léttu spjalli við aðra farþega og var spurður að því hvort Rio Ferdinand yrði í landsliðshópnum fyrir leik gegn San Marínó í næstu viku og Póllandi fjórum dögum síðar.

„Ég efast stórlega um það. Hann hefur ekki spilað fyrir England í langan tíma. Tími hans með enska landsliðinu er liðinn. Hann er kominn að leiðarlokum. Hann er að verða 34 ára og hefur ekki spilað fyrir landsliðið lengi," sagði Hodgson.

Ferdinand hefur ekki lagt landsliðsskóna á hilluna en margir héldu að dyrnar myndu opnast fyrir hann þegar John Terry tilkynnti að hann væri hættur að leika fyrir England.

Gary Neville, sem er í þjálfaraliði Hodgson, viðurkenndi fyrr í vikunni að Ferdinand yrði ekki valinn í liðið nema hann væri hugsaður sem byrjunarliðsmaður.

Baksíðu Daily Mirror má sjá hér að neðan:
Slapp
banner