Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 17. október 2012 14:00
Elvar Geir Magnússon
Einar Örn: Fjölhæfni Birkis öflugt vopn
Jákvætt og neikvætt við landsleikinn
Einar Örn er fyrrum landsliðsmaður í handbolta.
Einar Örn er fyrrum landsliðsmaður í handbolta.
Mynd: Sport.is - Hilmar Þór
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net fékk vel valda aðila til að skoða landsleik Íslands gegn Sviss í gær og nefna þrjá jákvæða og þrjá neikvæða punkta varðandi leikinn.



Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður á RÚV, ríður á vaðið en síðar í dag birtum við álit frá fleiri álitsgjöfum.

Jákvætt:

- Hugarfar leikmanna
Allir gerðu sitt allra ítrasta til að spila jákvæðan fótbolta með vænum skammti af alíslenskri grimmd.

- Færin sem liðið skapaði
Góð lið nýta sín færi en fyrsta skrefið er að koma sér í færin. Við erum á réttri leið og á meðan við höldum áfram að skapa færi er bara tímaspursmál hvenær þau fara að detta.

- Birkir Bjarnason
Sívinnandi og þar af leiðandi síógnandi. Var út um allt og fjölhæfni hans á eftir að verða öflugt vopn á næstu árum.

Neikvætt
Neikvæðari atriðin eru öll saman mun léttvægari en þau jákvæðu.

- Andartakseinbeitingarleysið er enn til staðar
Hefði verið hægt að koma í veg fyrir bæði mörkin. Er þó varla stórvandamál lengur.

- Leikbönnin
Ekkert við leikmenn sjálfa að sakast, gul spjöld eru hluti af leiknum en það svíður engu að síður. Að tvö gul þýði leikbann í 10 leikja undankeppni er líka frekar hart.

- Tóm sæti
Mér finnst nú bara að það eigi alltaf að vera fullt þegar landsliðið spilar! Leikmenn eiga það skilið að færri komist að en vilji.
Slapp
banner