Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 17. október 2012 15:00
Elvar Geir Magnússon
Eysteinn Húni: Vantaði það sem öllu máli skiptir
Jákvætt og neikvætt við landsleikinn
Eysteinn Húni Hauksson.
Eysteinn Húni Hauksson.
Mynd: Fótbolti.net - Davíð Örn Óskarsson
Fótbolti.net fékk vel valda aðila til að skoða landsleik Íslands gegn Sviss í gær og nefna þrjá jákvæða og þrjá neikvæða punkta varðandi leikinn.



Eysteinn Húni Hauksson, þjálfari Hattar á Egilsstöðum, er næstur í röðinni en á næstu klukkutímum birtum við umsagnir fleiri álitsgjafa.

Jákvætt:

- Sóknarleg gæði liðsins
Alfreð, Birkir og Gylfi sérstaklega líklegir og skapa mikla hættu með vilja, sjálfstrausti og tækni.

- Gamla góða baráttan, leikgleðin og einhugurinn
Menn að hjálpa hver öðrum úti um allan völl, og að vinna boltann sjálfir líka.

- Breidd í gæðum leikmanna
Við erum hársbreidd frá því að klára þetta sterka lið, og það hefði verið sanngjarnt, þó vanti fyrirliðann og aðal markaskorarann.

Neikvætt:

- Klára færin
Þó gæðin séu augljós í sóknarleiknum, þá vantaði samt það sem öllu máli skiptir, að klára færin.

- Ná fyrsta bolta
Áttum lítið af fyrsta bolta eftir spyrnu í föstum leikatriðum, sóknarlega.

- Mistök
Gerum tvenn mistök í fyrra markinu. Hannes missir fyrirgjöfina, sem er reyndar ekki í neinu samræmi við hans leik og ég hefði viljað sjá skotmanninn þurfa að hafa meira fyrir því að komast inn á miðju, á skotfótinn. Það sést þó alveg á aðdragandanum, og þeir mega eiga það, varnarmennirnir að þeir eru ekkert að hlífa sér, eða bíða eftir að aðrir sjái um verkin. En, eins og maðurinn sagði: "Svona er þetta".



Fleiri álitsgjafar:
Einar Örn Jónsson
Slapp
banner
banner
banner