Fótbolti.net fékk vel valda aðila til að skoða landsleik Íslands gegn Sviss í gær og nefna þrjá jákvæða og þrjá neikvæða punkta varðandi leikinn.
Jóhann Kristinn Gunnarsson er þjálfari Íslandsmeistara Þórs/KA í kvennaflokki og fylgdist hann spenntur með leiknum í gær.
Jákvætt:
- Yfirvegun
Mjög jákvætt að sjá hve mikil yfirvegun og hugrekki var í spili liðsins og viljinn til að halda boltanum var greinilegur. Þó menn væru settir undir pressu var ekkert fát og stress í gangi. Menn reyndu að spila úr öllum aðstæðum.
- Emil Hallfreðsson
Emil á miðjunni virkaði mjög sterkur. Sérstaklega varnarlega en var þó alltaf líklegur að hefja sóknir og tapaði ekki mörgum boltum.
- Skipulag
Skipulagið virtist halda vel og þjálfarateymið virðist hafa undirbúið liðið mjög vel enda ráðast úrslitin í raun á augnabliks kæruleysi íslenska liðsins og eiginlega smávegis lukku gestanna.
Neikvætt:
Eftir fínan leik er hundleiðinlegt að finna neikvæða punkta en þeir eru auðvitað alltaf einhverjir.
- Augnabliks kæruleysi
Það neikvæða sem má benda á er kannski það augljósa fyrst. Augnabliks kæruleysi í mörkunum sem við fáum á okkur en þó kannski sérstaklega í marki tvö. Í fyrra markinu hefði enginn þurft að henda sér neitt eða hreinsa boltann í burtu ef Hannes hefði bara haldið fyrirgjöfinni. Klaufalegt því annars átti hann góðan leik. Í seinna markinu sofnuðu menn á verðinum og gleymdu manninum sínum.
- Fleiri betri færi
Miðað við hve áræðnir strákarnir voru í sínu spili hlýtur að vera svekkjandi hve fá góð færi þeir fengu. Annars væri maður ekkert að spá í þetta ef Alfreð hefði sett hann úr annað hvort færinu í fyrri hálfleik eða skallanum í seinni, nú eða báðum. Birkir hefði smellt honum undir slánna eða náð að klára hlaupið betur fyrr í leiknum og klárað maður á mann. Miðað við möguleikana hefði maður viljað sjá fleiri betri færi og fleiri tilraunir á markið.
- Föstu leikatriðin
Í framhaldi af því má kannski nefna að eftir löng innköst og hornspyrnur hefðum við mátt fá kannski eins og einu sinni tilraun á markið. Man ekki eftir því að hætta hafi skapast eftir þessi atriði. Gestirnir hafa líklega verið búnir að kortleggja þessi mál ansi grimmt.
Fleiri álitsgjafar:
Eysteinn Húni Hauksson
Einar Örn Jónsson



