Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 17. október 2012 20:30
Elvar Geir Magnússon
Bjarni Guðjóns: Eigum ekki að sætta okkur við tap heima
Jákvætt og neikvætt við landsleikinn
Bjarni í leik með KR.
Bjarni í leik með KR.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Kári Árnason með boltann í leiknum í gær.
Kári Árnason með boltann í leiknum í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net fékk vel valda aðila til að skoða landsleik Íslands gegn Sviss í gær og nefna þrjá jákvæða og þrjá neikvæða punkta varðandi leikinn.



Fyrirliði KR, reynsluboltinn Bjarni Guðjónsson, segir nú sína skoðun.

Jákvætt:

- Landsliðsþjálfarinn og leikkerfið
Það skiptir engu hvort við erum að spila við Albaníu úti, Færeyjar eða Sviss hér heima, vel skipulagt leikkerfi er alltaf til staðar. Þetta er mikill kostur og það er gott fyrir strákana að vita að hverju þeir ganga, þó að vissulega séu misjafnar áherslur fyrir hvern leik. Hægt og rólega verður liðið betra og betra innan þessa ramma.

- Frammistaða Birkis Bjarnasonar í leiknum
Birkir leggur á sig ótrúlega mikla og óeigingjarna vinnu fyrir liðið, sem smitar út frá sér til liðsfélaganna. Fyrir utan það, þá er Birkir gæddur þeim hæfileika að vita hvar takmörk hans liggja. Í því felst styrkur hans að miklu leyti. Slíkan leikmann þurfa öll góð lið að eiga, svo það er mikill fengur í Birki Bjarnasyni.

- Sjálfstraust
Liðið spilaði vel þrátt fyrir að vera án lykilmanna eins og til dæmis Arons Einars, Kolbeins og Eiðs Smára. Það er augljóslega mikið sjálfstraust í hópnum.

Neikvætt:

- Varnarleikurinn
Það er of mikið að fá á sig tvö mörk á heimavelli og á köflum vorum við mjög heppnir að fá ekki á okkur fleiri mörk. Varnarleikur liðsins hefur ekki verið uppi á sitt besta, en Hannes hefur gripið vel inni í þegar þess hefur verið þurft. Við söknuðum klárlega Sölva Geirs í gær.

- Leikmannavalið hentaði ekki
Ég hefði viljað sjá Lars gera breytingu á vörninni, þrátt fyrir að hún hafi staðið sig ágætlega í Albaníu. Það á ekki að líta á það sem refsingu ef að menn detta úr liðinu. Þó að menn spili vel í einum leik þá er ekki víst að þeir henti í næsta leik.

- Klárum leikina
Við Íslendingar erum því miður löngu orðnir vanir því að ná ekki ásættanlegum úrslitum úr jöfnum leikjum. Eftir leikinn gegn Norðmönnum hafði ég trú á því að þetta myndi breytast - nú myndi liðið ekki sætta sig lengur við að glata niður leikjum sem það ætti að vinna, heldur veita náðarhöggið sem hefur svo oft vantað. Við höfðum tækifæri til að komast yfir í gær og stjórna ferðinni, en við gripum það tækifæri ekki. Þessu þarf að breyta. Við höfum mikla trú á þessu liði og eigum ekki að sætta okkur við tap á heimavelli.



Fleiri álitsgjafar:
Freyr Alexandersson
Guðmundur Marinó Ingvarsson
Jóhann Kristinn Gunnarsson
Eysteinn Húni Hauksson
Einar Örn Jónsson
Slapp
banner
banner