Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 24. október 2012 13:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Paul Jewell hættur með Ipswich
Mynd: Getty Images
Paul Jewell er hættur sem knattspyrnustjóri Ipswich Town í ensku Championship deildinni.

Ipswich er á botni deildarinnar en liðið hefur ekki unnið leik síðan í annarri umferð.

Eftir tap gegn Derby í gær fengu forráðamenn Ipswich síðan nóg og þeir hafa komist að samkomulagi við Jewell um að hann láti af störfum.

Margir stuðningsmenn Ipswich fagna þessum tíðindum en þar á meðal er Gunnar Sigurðarson, Gunnar á Völlum.

,,PAUL JEWELL HEFUR YFIRGEFIÐ VAGNINN #AAAAAAAAA #itfc #svostaðfestaðégleggbáðarhenduraðveði #guðblessiþennandag #tárfelling;" skrifaði Gunnar á Twitter síðu sína nú í hádeginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner