Síðasta umferð ársins fer fram í enska boltanum þessa helgina og hefst hún í dag, en það er nóg af góðum leikjum á dagskrá.
Sunderland mætir Tottenham í fyrsta leik dagsins, en hann fer fram í hádeginu á leikvangi ljóssins. Manchester United mætir þá WBA á Old Trafford og getur Man Utd styrkt stöðu sína á toppnum á meðan WBA heldur áfram baráttunni um Evrópusæti.
Norwich fær Manchester City í heimsókn. Norwich hefur farið vel af stað á tímabilinu á meðan Man City vonast eftir því að verja titilinn. Reading og West Ham mætast í nýliðaslag og þá fær Aston Villa erfitt verkefni gegn Wigan.
Stoke City og Southampton mætast á Britannia-vellinum og þá mætir Fulham liði Swansea. Arsenal fær þá Newcastle í heimsókn á Emirates í síðasta leik dagsins.
Leikir dagsins:
12:45 Sunderland - Tottenham (Beint á Stöð 2 Sport 2)
15:00 Manchester United - West Brom (Beint á Stöð 2 Sport 2)
15:00 Norwich - Manchester City (Beint á Stöð 2 Sport 3)
15:00 Reading - West Ham (Beint á Stöð 2 Sport 4)
15:00 Aston Villa - Wigan (Beint á Stöð 2 Sport 5)
15:00 Stoke City - Southampton (Beint á Stöð 2 Sport 6)
15:00 Fulham - Swansea
17:30 Arsenal - Newcastle (Beint á Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir