Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 10. janúar 2013 16:11
Magnús Már Einarsson
Sarpsborg gerir tilboð í Þórarinn Inga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Norska félagið Sarpsborg 08 hefur lagt fram tilboð í Þórarinn Inga Valdimarsson leikmann ÍBV.

Eyjamenn ætla að íhuga tilboðið næstu dagana og svara Sarpsborg eftir helgi.

,,Við erum búnir að fá tilboð frá Sarpsborg. Við erum að fara yfir það og svörum þeim á mánudaginn," sagði Óskar Örn Ólafsson formaður knattspyrnudeildar í samtali við Fótbolta.net í dag.

Þórarinn Ingi hefur verið lykilmaður í liði ÍBV undanfarin ár en þessi 22 ára gamli leikmaður skoraði fimm mörk í sautján leikjum í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar.

ÍBV seldi miðjumanninn Guðmund Þórarinsson til Sarpsborg á dögunum og Þórarinn gæti nú farið sömu leið. Sarpsborg tryggði sér sæti í norsku úrvalsdeildinni síðastliðið haust en markvörðurinn Haraldur Björnsson leikur einnig með liðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner