Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 18. janúar 2013 08:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Victor Valdes mun ekki endurnýja samning sinn við Barcelona
Mynd: Getty Images
Victor Valdes, markvörður Barcelona, virðist vera á förum frá félaginu þegar samningur hans rennur út á næsta ári eftir að ákvörðun hans um að skrifa ekki undir nýjan samning var tilkynnt í gærkvöldi.

Þessi 31 árs markvörður hefur allan sin feril verið á mála hjá Barcelona en stefnir nú á að róa á önnur mið á næsta ári og upplifa aðra menningu.

Umboðsmenn hans og stjórnarformenn Barcelona funduðu í gærkvöldi þar sem þetta var tilkynnt.

,,Umboðsmenn Victor Valdes funduðu með Barcelona í kvöld (gærkvöldi) og komu því á framfæri að endanleg ákvörðun leikmannsins væri sú að endurnýja ekki samning hans," sagði í yfirlýsingu Gines Carvajal, umboðsmanns.

Valdes hefur verið aðalmarkvörður Barcelona síðan 2003.
Athugasemdir
banner
banner