Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   sun 05. maí 2013 10:00
Elvar Geir Magnússon
Tómas Þór spáir í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar
Mynd: Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Mun Guðmundur Steinn ganga frá Fram?
Mun Guðmundur Steinn ganga frá Fram?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Líkt og undanfarin ár fær Fótbolti.net valinkunna einstaklinga til að spá fyrir um úrslit leikja Pepsi-deildarinnar. Tómas Þór Þórðarson, annar umsjónarmaður útvarpsþáttar Fótbolta.net og blaðamaður á Morgunblaðinu, ríður á vaðið.

ÍBV 0 - 0 ÍA (sun 16:00)
Verður ekki fallegur leikur. Bæði lið að spila sig saman, Skaginn bara að fá nýjan mann síðast á fimmtudaginn. Gæti svo sem dottið inn mark öðru hvoru megin en ég held þetta verði markalaust og bæði lið nokkuð sátt með það.

Víkingur Ó. 2 - 0 Fram (sun 17:00)
Ólsarar fá heimaleik í fyrstu umferð í fyrsta skipti í efstu deild og það er sjónvarpsleikur. Þetta er stærsti leikurinn á ævi sumra leikmanna liðsins og vilja þeir án efa sanna sig. Mark í sitthvorum hálfleiknum frá Guðmundi Steini.

Breiðablik 3 - 1 Þór (sun 17:00)
Blikar fóru hægt af stað í fyrra en ég held það verði öfugt í ár. Þeir ætla sér stóra hluti og hafa varla tapað leik á undirbúningstímabilinu. Þórsliðið er mun betra en ég held að flestir geri sér grein fyrir en útileikur á Kópavogsvelli var ekki það sem læknirinn pantaði í fyrstu umferð.

FH 3 - 0 Keflavík (mán 19:15)
Keflvíkingar halda í við FH til að byrja með í leiknum en fljótlega taka meistararnir yfirhöndina og mörkin detta inn í seinni hálfleik. Það eru bara of mikil gæði í FH-liðinu fyrir Keflavík að ráða við.

Fylkir 1 - 2 Valur (mán 19:15)
Afar áhugaverður leikur tveggja liða sem mæta breytt til leiks. Valsmenn eru komnir lengra í sinni þróun eins og sást í leik liðanna í Lengjubikarnum á dögunum. Það eru líka meiðslavandræði í herbúðum Fylkis. Valsmenn vinna með einu marki en þetta verður samt tiltölulega sannfærandi. Kolbeinn Kárason skorar eitt og TG9 fyrir Fylki.

KR 3 - 2 Stjarnan (mán 19:15)
Held þetta verði algjör lúxusleikur þó KR-völlurinn eigi víst ekki að vera góður. Verður enginn vorbragur þarna. Stjarnan kemst tvisvar yfir, Veigar skorar, en KR hefur þetta á endanum með sigurmarki frá Smalanum úr Mývatnssveitinni.
Slapp
banner