Tómas Þór Þórðarson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu, fékk fjóra rétta þegar hann tippaði á fyrstu umferðina í Pepsi-deildinni.
Þórhallur Dan Jóhannsson, fyrrum leikmaður Fylkis, Fram og KR, tippar á leikina í 2. umferðinni.
Þórhallur Dan Jóhannsson, fyrrum leikmaður Fylkis, Fram og KR, tippar á leikina í 2. umferðinni.
ÍBV 1 - 2 Breiðablik (17:00 í dag)
Breiðablik tekur þetta þó að Hermann og félagar séu með sterkt lið. Ég held að Óli sé að byggja upp gott lið og þeir eru tilbúnir að leggja mikið á sig og halda skipulagi. Þeir sækja á mörgum mönnum sem getur verið veikleiki þegar eru fáir í vörninni en ég held að Blikarnir vinni 2-1.
Þór 1 - 3 FH (17:00 í dag)
Þórsararnir spiluðu ,,suicide" fótbolta í síðustu leik og þeir verða að átta sig á því að það er ekki hægt í úrvalsdeildinni. Mér fannst Palli ekki leggja leikinn neitt upp, það var eiginlega ekkert skipulag á liðinu. FH-ingarnir eru sterkir og þeir vinna þennan leik.
Stjarnan 2 - 0 Víkingur Ó. (19:15 í kvöld)
Ég held að hrollurinn sé ekki farinn úr Víkingi Ólafsvík. Þetta er eiginlega skyldusigur fyrir Stjörnuna. Þeir hefðu getað náð jafntefli í Vesturbæ og ég held að þeir taki þennan leik.
Keflavík 1 - 0 KR (19:15 í kvöld)
KR-ingunum hefur ekki gengið sérstaklega vel í Keflavík. Keflavík spilaði á móti FH en sofnðu á verðinum í fimm mínútur og fengu á sig tvö mörk. Ég held að Keflavík vinni þennan leik.
Fram 0 - 0 Fylkir (19:15 á morgun)
Mínir gömlu félagar. Ef ég ætti að láta hjartað ráða ferðina þá myndi ég vona að Fylkir myndi vinna en ég verð að láta skynsemina ráða þessu og spái jafntefli. Þessir leikir hafa oft verið skemmtilegir en núna fer þetta 0-0.
ÍA 2 - 1 Valur (20:00 á morgun)
Skagamenn voru kannski óheppnir í Eyjum á meðan Valsmenn voru fleiri í talsvert langan tíma á móti Fylki. Skaginn tekur þetta.
Eldri spámenn:
Tómas Þór Þórðarson 4 réttir




