Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 13. maí 2013 16:15
Elvar Geir Magnússon
Bestur í 2. deild: Saga til næsta bæjar að ég skori tvö með hægri
Leikmaður 1. umferðar: Kristján Steinn Magnússon (Dalvík/Reynir)
Kristján Steinn Magnússon.
Kristján Steinn Magnússon.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Mynd: Jón Örvar Arason
„Þetta var bara brilljant," segir Kristján Steinn Magnússon sem skoraði öll þrjú mörk Dalvíkur/Reynis sem vann 3-1 útisigur á Atla Eðvaldssyni og félögum í Reyni Sandgerði í 1. umferð 2. deildar.

Kristján er leikmaður umferðarinnar.

„Við vorum komnir þremur mörkum yfir snemma í seinni hálfleik en misstum svo mann af velli með rautt spjald og þá var þetta erfitt. En þetta gekk upp og liðið stóð sig mjög vel. Þetta small fyrir mig á laugardaginn og ég náði að banka inn þremur mörkum. Það gerist ekki betra á byrjunardegi."

Var eitthvað varið í þessi mörk? „Þó ég segi sjálfur frá. Þegar örvfættur maður skorar tvö mörk með hægri þá hlýtur það að vera saga til næsta bæjar. Ég fékk þrjú færi og náði að klára þau, það er bara jákvætt."

„Við rennum nokkuð blint í sjóinn með þetta til að byrja með en við erum með hörkulið. Það er flott stemning í hópnum og við erum til alls líklegir, við höfum sýnt það í vetur og í þessum leikum. Við erum bara bjartsýnir og höfum sæmilega trú á okkur."

Kristján hefur leikið með Þór, Magna og Völsungi en hvernig kom það til að hann gekk í raðir Dalvíkur/Reynis?

„Samningur minn við Þór hefði runnið út í haust. Ég hef verið fyrir sunnan í háskóla á veturna og þetta kom upp. Ég þekki vel til Pedda (Pétur Heiðar Kristjánsson) sem er þjálfari Dalvíkur og ákvað að kýla á þetta með honum og prófa að skella mér í 2. deildina," segir Kristján.

„Það er fullt af sterkum liðum í þessari deild og erfitt að spá í hana. Það kom mér á óvart að HK skyldi tapa fyrsta leik en KV er líka með gríðarlega sterkt lið. Það eru mörg lið sem ætla sér stóra hluti í sumar eins og til dæmis Afturelding. Maður vill svo aldrei afskrifa sjálfan sig en ég býst við jafnri og spennandi deild."

Kristján er uppalinn Þórsari og segir að það sé erfitt að horfa upp á svona slæma byrjun Þórs í Pepsi-deildinni.

„Það er ekkert gaman að því. Mér var skítkalt á leiknum í gær og það yljaði manni ekki um hjartarætur að horfa upp á þetta. Þórsarar eru þekktir fyrir allt annað en að gefast upp og ég hef enga trú á öðru en að félagar mínir í Þórsliðinu bíti frá sér og rífi þetta slen af sér sem er á því í byrjun móts. Það er alltaf brekka fyrir lið sem koma upp en það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn," segir Kristján Steinn, leikmaður 1. umferðar.
Slapp
banner
banner
banner