Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 16. maí 2013 12:45
Elvar Geir Magnússon
Hansi spáir jafntefli í Krikanum og að Eyþór fari ekki áfram
Ætlar að borða tómat ef Ísland fer áfram
Hans Steinar Bjarnason.
Hans Steinar Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Hansi er hrifinn af Valsliðinu en spáir að það geri jafntefli í kvöld.
Hansi er hrifinn af Valsliðinu en spáir að það geri jafntefli í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heil umferð verður í Pepsi-deildinni í kvöld og er spámaður okkar þennan daginn Hans Steinar Bjarnason, íþróttafréttamaður á RÚV. Í kvöld verður einnig forkeppni Eurovision og fengum við Hansa til að spá í spilin hvort Eyþór Ing

KR 3 - 0 Þór (18:00)
Ég held að sviðsskrekkurinn sé ekki alveg farinn úr Þórsurum enda búnir að fá á sig 7 mörk í fyrstu tveimur leikjunum. Þeir fengu þó sín færi gegn FH sem skoraði mörkin þrjú seint á Akureyri í síðustu umferð. KR ingar líta þó of vel út til að Þórsarar nái að gera þeim skráveifu.

Fylkir 2 - 2 Stjarnan (19:15)
Stjarnan skorar alltaf og fær alltaf á sig mörk. Fylkismenn búnir að vera óheppnir í fyrstu tveimur leikjunum. Það styttist í sigur hjá þeim og ég var búinn að setja 3-2 á þetta en held að við fáum jafntefli.

Breiðablik 2 - 1 ÍA (19:15)
Skagamenn líta bara ekki nógu vel út í byrjun móts og tap í fyrstu tveimur getur farið á sálina hjá mönnum. Það vantar bit í framlínuna meðan Garðar er ekki heill. Ég tel Blika geta gert tilkall til titilsins í ár og allt annað en sigur er tap fyrir Blika í kvöld.

Valur 2 - 2 Fram (19:15)
Ég er nokkuð hrifinn af þessu Valsliði hjá Magga og það er að skora 5 mörk í fyrstu tveimur leikjunum. Hallast að sigri Vals en enginn skyldi vanmeta kænsku Todda Örlygs þjálfara Fram svo eitthvað segir mér að þetta verði jafntefli.

Víkingur 2 - 1 Keflavík (19:15)
Tvö stigalaus lið að berjast um gríðarlega mikilvæg stig í upphafi móts. Ég verð að kasta teningnum hátt í loftið hérna. Tilfinningin segir að nýliðarnir í Ólafsvík séu komnir með bragðið af Pepsíinu og kreisti út sigur á heimavellinum sínum.

FH 1 - 1 ÍBV (20:00)
Þetta er risaleikur. Ég tók báða varnarmennina mína úr þessum liðum sem ég er með í fantasyliðinu mínu og setti þá á bekkinn. Við fáum pottþétt mörk en þetta verður stál í stál. Jafntefli.

Eurovision:
Eyþór færi áfram með annað lag enda þöndersöngvari. En það er ekki að fara að gerast í kvöld. Ég er búinn að heita því að borða tómat (sem er viðbjóður) og dýfa honum í lýsi ef Ísland fer áfram.



Eldri spámenn:
Tómas Þór Þórðarson 4 réttir
Þórhallur Dan Jóhannsson 3 réttir
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner
banner