Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 17. maí 2013 17:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Lögreglan trúði ekki að Akinfenwa spilaði fótbolta
Adebayo Akinfenwa, framherji Northampton, hefur vakið athygli í ensku neðri deildunum undanfarin ár.

Akinfenwa er 100 kíló og rífur upp 175 kíló í bekkpressu. Þessi vígalegi framherji hefur skorað sextán mörk í ensku D-deildinni á þessu tímabili þrátt fyrir að það trúi því ekki allir að hann spili fótbolta.

Á dögunum hélt til að mynda lögreglumaður á Englandi að Akinfenwa spilaði amerískan fótbolta.

,,Um daginn stöðvaði lögreglan bílinn minn og spurði mig: 'Hvað vinnur þú við?' Ég sagðist spila fótbolta," sagði Akinfenwa í viðtali við BBC.

,,Þá sagði lögreglan: 'Ég er byrjaður að fylgjast með Superbowl, ég er að komast inn í þetta.' Ég sagði aftur við hann: 'Ég spila fotbolta'. Hann sagði þá aftur: 'Já, ég er byrjaður að fylgjast með Superbowl.' Þá sagði ég við hann: 'Ég spila alvöru fótbolta.' Þá svaraði hann: 'Þú ert of þykkur til að spila fótbolta."

Northampton mætir Bradford í úrslitaleik umspilsins í ensku D-deildinni á Wembley á morgun og Akinfenwa verður í eldlínunni þar.

Smelltu hér til að sjá viðtal BBC við Akinfenwa

Sjá einnig:
100 kílóa framherji í ensku D-deildinni - Tekur 175 kíló í bekk
Slapp
banner