Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 21. maí 2013 13:30
Elvar Geir Magnússon
Bestur í 2. deild: Stefnum á að komast upp úr þessari deild
Leikmaður 2. umferðar: Einar Már Þórisson (KV)
Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Knattspyrnufélag Vesturbæjar fer glimrandi vel af stað í 2. deildinni. Liðið vann öflugan sigur á HK í fyrstu umferð og fór svo illa með Ægi í Þorlákshöfn síðasta laugardag.

Einar Már Þórisson, leikmaður KV, skoraði þrennu í Þorlákshöfn og fær titilinn leikmaður umferðarinnar í deildinni.

„Þetta var mjög þægilegur sigur þar sem þessum fjórum mörkum var þægilega dreift yfir leikinn. Við byrjum þetta mót vel og ætlum ekkert að stoppa núna heldur halda áfram," segir Einar.

Auðunn Örn Gylfason skoraði eitt af mörkum KV í leiknum en það var nokk sérstakt.

„Hann sendi frábæra sendingu af 60 metrum og markvörðurinn náði á einhvern hátt að missa boltann gegnum klofið og hann lak inn. Það voru erfiðar aðstæður í þessum leik, mikill vindur og svona"

Einar Már segir að stemningin í KV-hópnum sé frábær.

„Við erum búnir að stækka hópinn mikið og erum komnir með miklu meiri breidd en í fyrra. Það er frábær stemning hjá okkur og allir þekkjast mjög vel. Menn hafa spilað saman síðan þeir voru litlir. Það er komin samkeppni um hverja einustu stöðu."

Það er hörkuleikur hjá KV á föstudaginn þegar liðið mætir Aftureldingu sem einnig hefur unnið báða leiki sína.

„Við ætlum að setja „statement" og vinna þá. Markmið okkar er það sama og í fyrra. Við stefnum á að komast upp úr þessari deild," segir Einar Már Þórisson.

Sjá einnig:
Bestur í 1. umferð: Kristján Steinn Magnússon (Dalvík/Reynir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner