Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 28. maí 2013 10:00
Elvar Geir Magnússon
Bestur í 2. deild: Titill sem venst ótrúlega vel
Leikmaður 3. umferðar: Kristján Steinn Magnússon (Dalvík/Reynir)
Mynd: Úr einkasafni
Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson
Kristján Steinn Magnússon er leikmaður umferðarinnar í 2. deild í annað sinn. Hann skoraði þrennu í fyrstu umferð og endurtók leikinn svo í þeirri þriðju þegar Dalvík/Reynir vann 4-0 sigur gegn Sindra.

„Leikmaður umferðarinnar er titill sem venst ótrúlega vel," segir Kristján.

„Þetta var hörkuleikur og mér fannst allt liðið spila mjög vel. Við fengum að vísu mjög ódýra vítaspyrnu að mér fannst í byrjun leiks, en það þarf líka að nýta þær og við litum aldrei til baka eftir það. Sindraliðið er gott en mér fannst við vera töluvert betri allan leikinn."

„Ég hafði nú ekki gert mér sérstakar vonir um markaskorun fyrir tímabilið, en jú þetta er vissulega afar ánægjulegt. Best er þó að við skulum vera með fullt hús eftir þessa þrjá leiki. Klárt mál samt að þrennurnar eru ekkert að spilla gleðinni." segir Kristján sem segist ekki hafa sett sér nein markmið varðandi markaskorun.

„Nei, í rauninni ekki. Maður reynir bara að stuðla að því að við fáum þrjú stig heim í Jóa Risa safn heim og ef ég næ að skora einhver mörk þá er það bara bónus."

„Sjálfstraustið er í fínu lagi í hópnum og auðvitað erum við hæstánægðir með byrjunina. Það hefur hins vegar margsannað sig í þessari deild að hún er gríðarlega jöfn og það er mikilvægt að núllstilla sig fyrir hvern leik, sama hvernig gengur. Við verðum að passa að fara ekki fram úr okkur og taka einn leik fyrir í einu og sjá svo til hvar við endum í haust."

Dalvík/Reynir trónir á toppi 2. deildarinnar með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. Liðið heimsækir Gróttu í næsta leik. Hvernig lýst Kristjáni á þann leik?

„Mjög vel bara. Gróttumenn eru með hörkulið og flottan þjálfara og ég hlakka mikið til að takast á við þá."

Sjá einnig:
Bestur í 2. umferð: Einar Már Þórisson (KV)
Bestur í 1. umferð: Kristján Steinn Magnússon (Dalvík/Reynir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner
banner