Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 04. júní 2013 09:00
Elvar Geir Magnússon
Bestur í 2. deild: Háaldraðir með tvítugar sálir
Leikmaður 4. umferðar: Marteinn Urbancic (ÍR)
Skemmtileg mynd af Marteini að fagna marki sínu gegn Aftureldingu.
Skemmtileg mynd af Marteini að fagna marki sínu gegn Aftureldingu.
Mynd: skrani.com/ir
Mynd: skrani.com/ir
Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla
Marteinn Urbancic og félagar í ÍR unnu sterkan útisigur á Aftureldingu í 2. deildinni. Marteinn, sem er tvítugur, skoraði fyrra markið og lagði það síðara upp í 2-1 sigri og er leikmaður umferðarinnar.

„Þetta var hörkuleikur gegn mjög sterku liði Aftureldingar. Veðrið var ekki að hjálpa liðunum með að spila góðan fótbolta en ég tel þó að bæði lið hafi gert það besta úr aðstæðunum. Leikurinn var kaflaskiptur og fyrra mark okkar kom ef til vill gegn gangi leiksins," segir Marteinn.

„Í stöðunni 2-1 þá missti Afturelding mann af vell. Eftir það þá færðu þeir sig framar og við fengum svona 4-5 dauðafæri til að klára leikinn en vorum klaufar að nýta þau færi ekki. Við lentum því í óþarfa spennandi lokamínútum manni fleiri, en það skrifast kannski á reynsluleysi í hópnum. Ég tel samt sem áður að þetta hafi verið sanngjörn úrslit svona miðað við gang leiksins."

Spilar árangursríkan fótbolta
Miklar breytingar hafa orðið á liði ÍR frá síðasta tímabili en leikmannahópur liðsins í dag er mjög ungur. Eftir fjórar umferðir er ÍR aðeins einu stigi frá toppi deildarinnar.

„Auðvitað er mjög gott að vera nálægt toppnum og ekki skemmir fyrir að vera taplausir á heimavelli. Við erum búnir að vera ánægðir með varnarleikinn, höfum fengið á okkur 3 mörk og 2 þeirra úr vítaspyrnum. Það er oft þannig að lið sem fellur úr deild er oft spáð strax upp aftur en það var mikil breyting á leikmannahóp liðsins," segir Marteinn.

„Stemningin í hópnum gæti ekki verið betri. Þetta eru flest allt strákar á sama aldri, fæddir rétt eftir 1990 og meðalaldurinn um 21 ár. Þetta eru strákar sem hafa spilað saman í liði síðan þeir voru smápollar og eru góðir vinir. Liðsheildin er mjög góð og þrátt fyrir að það séu háaldraðir menn þarna inn á milli eins og Magnús Þór Magnússon markmaður og Sigurður Höskuldsson þá passa þeir vel inn í hópinn, enda með tvítugar sálir."

„ÍR-liðið spilar mjög agaðan leik. Leikmennirnir kunna sínar stöður upp á hár og eru mjög duglegir varnarlega. Það skilar sér í því að þegar liðið vinnur boltann er það mjög fljótt að sækja upp völlinn á fljótum leikmönnum. Liðsmenn eru ekki hræddir við að halda boltanum og spila sig upp völlinn. Ég tel að liðið spili árangursríkan fótbolta og eigi eftir að safna mörgum stigum á því að verjast vel."

Fannst ég eiga skilið að fá að spila meira
En telur Marteinn að ÍR sé með það sem þurfi til að fara upp í sumar?

„Svona miðað við þessa fyrstu leiki þá tel ég að við ættum að geta staðið í flestum liðum deildarinnar. Við förum í alla leiki til að vinna þá og skila 3 stigum í hús. Það hefur gengið vel hingað til og við mætt þeim 2 liðum sem var spáð upp í deildinni í sumar. Fyrri leikurinn var mjög jafn gegn HK á útivelli og fór 1-0 fyrir þá og svo þessi sigur á útivelli gegn Aftureldingu," segir Marteinn sem er hjá ÍR á lánssamningi frá Haukum.

„Eftir síðasta tímabil hjá Haukum þá fór ég að skoða mína stöðu, hvort ég gæti farið á lán. Ég átti eitt ár eftir af samningnum og hafði ekki fengið þær mínútur sem mér fannst ég eiga skilið í 1. deildinni. Ég vildi fá meistaraflokksreynslu og spila með liði sem gæti notað mig. Ég talaði við nokkur félög í 2. deildinni og prófaði að æfa með ÍR. Ég ákvað næstum því strax eftir fyrstu æfinguna að þetta væri hópur sem ég vildi vera hluti af enda mjög skemmtilegir strákar í hópnum og ég sá fram á spennandi verkefni með strákum sem eru á sama aldri og ég, nokkurn vegin framlenging á 2. flokki."

„Ég tel þetta hafi verið mjög gott skref fyrir mig sem leikmann til að öðlast reynslu og svo sé ég bara til hvað tekur við í október þegar ég verð samningslaus frá Haukum."

Sjá einnig:
Bestur í 3. umferð: Kristján Steinn Magnússon (Dalvík/Reynir)
Bestur í 2. umferð: Einar Már Þórisson (KV)
Bestur í 1. umferð: Kristján Steinn Magnússon (Dalvík/Reynir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner