Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 11. júní 2013 08:30
Elvar Geir Magnússon
Bestur í 2. deild: Með allt lóðrétt niður um mig
Leikmaður 5. umferðar: Guðmundur Atli Steinþórsson (HK)
Guðmundur Atli Steinþórsson.
Guðmundur Atli Steinþórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
„Ég er 100% viss um að þetta lagist þegar Sverrir Þór Garðarsson kemst í betra spilform.
„Ég er 100% viss um að þetta lagist þegar Sverrir Þór Garðarsson kemst í betra spilform."
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikmaður umferðarinnar í 2. deild er Guðmundur Atli Steinþórsson sem var heldur betur áberandi þegar HK vann 6-2 útisigur gegn Dalvík/Reyni síðasta laugardag. Hann skoraði þrennu í leiknum auk þess að krækja í vítaspyrnu og rautt á markvörð heimamanna.

„Við vissum að þetta væru stórir og sterkir strákar í sveitinni og þeir eru yfirleitt ekki þeir fljótustu í bransanum. Einhverra hluta vegna spiluðu þeir með vörnina hátt uppi og það var bara veisla fyrir Leif Andra Leifsson að setja kúlur innfyrir úr vörninni, það var bara rennibraut í gegn," segir Guðmundur Atli.

„Þeir lagfærðu það reyndar í hálfleik og náðu að gera smá leik úr þessu þrátt fyrir að vera manni færri sem er aðdáunarvert eftir að hafa verið 3-0 undir."

Hættur að henda mér niður
Guðmundur Atli klúðraði vítaspyrnu áður en hann bætti upp fyrir það með þrennunni góðu.

„Ég er búinn að missa vítaskytturéttindin, er búinn að vera með allt lóðrétt niður um mig, lét útileikmann verja frá mér víti í seinasta leik og svo negldi ég í stöngina á móti Dalvík/Reyni. Ég hef reyndar verið að fiska þessi víti sjálfur þannig núna er ég hættur að henda mér niður í teignum og reyni að klára færið í staðinn."

Er hann búinn að setja sér eitthvað persónulegt markmið varðandi markaskorun í sumar?

„Nei, ég er bara að njóta þess að hafa tekið undirbuningstímabil í fyrsta skipti í 4 ár. Það er ekkert meira pirrandi en gæjar sem lofa 20 mörkum og niðurganga síðan á sig og geta ekkert, ætla ekki að brenna mig á því."

Með andlitið hans David Beckham
Erftir smá hikst í byrjun er HK-liðið búið að vinna tvo leiki í röð og er tveimur stigum frá ÍR sem er á toppnum. Er HK komið í gírinn?

„Það er erfitt að segja, þótt við höfum unnið seinustu tvo leiki stórt og sannfærandi þá vorum ekki að spila vel í hvorugum þeirra. Ég er reyndar 100% viss um að þetta lagist þegar Sverrir Þór Garðarsson kemst í betra spilform, þetta er strákur sem er með skrokkinn hans Marlon Harewood, andlitið hans David Beckham og gæðin hans Paul Scholes. Hann reyndar eitrar fyrir manni í stelpumálunum, sko spúir og spúir eitrinu en frábært að æfa með honum samt."

„Mér sýnist þetta vera spilast eftir væntingum, KV, Afturelding og ÍR verða þarna ásamt okkur að berjast um að komast upp og svo verður eitthvað lið sem kemur á óvart eins og vanalega."

Hvaða áherslur hefur Gunnlaugur Jónsson, sem tók við HK í vetur, komið með inn í lið?

„Gulli hefur verið frábær, þótt hann sé gamall varnarjaxl þá vill hann spila fótbolta og fá fyrirgjafir inn í teigin. Svo er hann líka mjög rólegur, ég held að ég hafi ekki náð að klára eina heila æfingu fyrstu mánuðina í vetur en hann var ekkert að æsa sig yfir því og ég þakka honum fyrir það," segir Guðmundur Atli Steinþórsson.

Sjá einnig:
Bestur í 4. umferð: Marteinn Urbancic (ÍR)
Bestur í 3. umferð: Kristján Steinn Magnússon (Dalvík/Reynir)
Bestur í 2. umferð: Einar Már Þórisson (KV)
Bestur í 1. umferð: Kristján Steinn Magnússon (Dalvík/Reynir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner