Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 14. júní 2013 10:39
Magnús Már Einarsson
Heimir biður Leikni Ágústsson afsökunar á ummælum sínum
Úr leiknum í gærkvöldi.
Úr leiknum í gærkvöldi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Gunnlaugsson, formaður meistaraflokksráðs Víkings R., hefur beðið Leikni Ágústsson dómara afsökunar á ummælum sínum eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Leikni R. í fyrstu deildinni í gærkvöldi.

Víkingar voru sérstaklega ósáttir við frammistöðu Leiknis í leiknum og Heimir kallaði hann meðal annars mesta sorp í íslenskum bolta.

Heimir hefur nú beðist afsökunar á þessum ummælum sínum en hann sendi frá sér afsökunarbeiðni í dag.

Afsökunarbeiðni Heimis:
Ég undirritaður bið Leikni Ágústsson og knattspyrnuáhugamenn afsökunar á harðorðum ummælum mínum á Twitter í hita leiksins í gær. Það er mín skoðun að leikurinn hafi ekki verið vel dæmdur og undir þá skoðun mína taka aðrir þeir sem ég hef rætt við. Stjórnarmenn í Víkingi leggja mikla vinnu og metnað í að halda úti góðu knattspyrnuliði og því blandast tilfinningar í það þegar manni finnst á sér brotið. Það breytir því þó ekki að ummælin mín í gær fóru yfir strikið og á því biðst ég afsökunnar.
Virðingarfyllst,
Heimir Gunnlaugsson

Sýnt verður úr leiknum og hann krufinn í sjónvarpsþættinum Fótbolti.net á Sporttv klukkan 12:30 á morgun

Sjá einnig:
Allt á suðupunkti í Breiðholti
Heimir um Leikni dómara: Er mesta sorp í íslenskum bolta
Slapp
banner
banner