Margrét Lára Viðarsdóttir þarf að taka sér frí frá knattspyrnuiðkunn á næstunni þar sem hún ber barn undir belti.
Í gærkvöldi birti Margrét mynd af sér á Facebook með bolta undir treyjunni og í kjölfarið hefur rignt yfir hana hamingjuóskum yfir tíðindunum.
Í gærkvöldi birti Margrét mynd af sér á Facebook með bolta undir treyjunni og í kjölfarið hefur rignt yfir hana hamingjuóskum yfir tíðindunum.
Margrét Lára er markahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi með 71 mark í 94 leikjum.
Hún var á dögunum gerður að fyrirliða landsliðsins en nú er útlit fyrir að hún missi af átta leikjum í undankeppni HM sem lýkur í september.
Á dögunum rann samningur hennar hjá sænska félaginu Kristinstad út og óvissa hafði verið um framtíð hennar.
Nú er hins vegar ljóst að þessi 27 ára gamli markaskorari mun ekki spila fótbolta næstu mánuðina.
Athugasemdir