Mourinho mikill aðdáendi John Hartson
John Hartson, sóknarmaður Celtic, er talinn líklegt skotmark Chelsea eftir að Jose Mourinho hrósaði honum í hástert.
Mourinho segir Hartson vera einn sá besta framherja í faginu og hefur það ýtt undir það að Chelsea sé tilbúið að semja við Celtic um kaupverð.
Mourinho sagði: "Hartson er frábær leikmaður, framherjatýpa sem ég dýrka. Hann veit allt um hvernig á að vera sóknarmaður. Þannig týpu finnuru bara í breskum fótbolta. Hann er stórkostlegur."
Mourinho hefur þegar látið Jimmy Floyd Hasselbaink fara og Adrian Mutu og Hernan Crespo er líklegir til að fylgja honum eftir. Þannig að Chelsea eru heldur fátækir með sóknarmenn en þeir hafa aðeins keypt Mateja Kezman í sumar.
Hartson sem á eitt ár eftir að samningi sínum við Celtic, hefur stöðugt haldið því fram að hann sé ánægður í Glasgow þrátt fyrir áhuga frá Birmingham, Middlesbrough og Fulham, en þessi kostur hlýtur að vera freistandi fyrir hinn 29 ára gamla Walesverja.



