mið 29. október 2014 06:00
Magnús Már Einarsson
Rolf Toft á reynslu hjá Start
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski framherjinn Rolf Toft er þessa dagana á reynslu hjá norska félaginu Start.

Toft kom til Stjörnunnar um mitt sumar og hjálpaði liðinu að landa Íslandsmeistaratitlinum.

Toft skoraði sex mörk í ellefu leikjum en þar af skoraði hann þrennu í næstsíðustu umferðinni gegn Fram.

Samningur Toft við Stjörnuna er að renna út og ekki er ljóst hvort hann muni koma aftur í Garðabæinn næsta sumar.

Start er í tíunda sæti í norsku úrvalsdeildinni þegar tvær umferðir eru eftir en Matthías Vilhjálmsson og Guðmundur Kristjánsson leika með liðinu.
Athugasemdir
banner
banner