Forgangsatriði fyrir Man Utd að fá Gyökeres - Zirkzee til Aston Villa?
   fim 19. ágúst 2004 01:00
Hafliði Breiðfjörð
Þrír handteknir á leiknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrátt fyrir að mest allt hafi gengið vel fyrir sig á landsleik Íslands og Ítalíu í kvöld er rúmlega tuttugu þúsund manns mættu í Laugardalinn var eitthvað um smá vandræði sem lögregla þurfti að sinna. Þannig virtist sem barn hafi meiðst eftir hoppað úr stæðum niður á völl eftir að vallarþulur hafði gefið börnunum leyfi til að fara niður. Auk þess handtók lögregla þrjá menn eftir að leiknum lauk. Tveir þeirra voru járnaðir og fjarlægðir í grasinu fyrir framan hlaupabrautina en sá þriðji nokkru síðar við hvítt tjald sem komið hafði verið upp á svæðinu en tjaldið skemmtist eitthvað við átökin. Myndin hægra megin er tekin af síðustu handtökunni og myndin að neðan er annar hinna tveggja voru fjarlægðir.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner