Mexíkanska íþróttafréttablaðið Récord, birti í gær myndir af vídeoupptöku þar sem Diego Armando Maradona, að því er talið, er að neyta kókaíns, nakinn, og að hafa kynmök á Kúbu, þar sem hann átti að vera í eyturlyfjameðferð.
Récord staðfesti að myndirnar voru teknar aðeins örfáum dögum áður en Maradona ferðaðist til Argentínu, þar sem hann átti eftir að verða lagður tvisvar inn á spítala vegna sýkingu í lungum og hjartatruflana, en hann var mjög hætt kominn og var talin nær dauða en lífi.
Á myndbandinu, sem Récord birti myndir úr, er Maradona hafandi kynmök við kærustu sína, Adonay Fruto, hann sést í félagsskap með ónafngreindum vinum sínum og það sést til hans ganga um nakinn eftir að hafa innbyrt kókaíns.
Íþróttablaðið vildi ekki gefa upp hvar það fékk upptökurnar en segir þær sanna, svo ekki sé um villst, að Maradona hafi neytt kókaíns.
Á einni af myndunum, sem er mjög dimm og er þ.a.l. ekki áreiðanleg, er sýnd persóna með svipaða líkamsbyggingu og Maradona, hann liggur upp í sófa með andlitið mjög nálægt diski, sem hann heldur með vinstri hendinni og þá hægri hefur hann nálægt nösunum, allt bendir til að viðkomandi er að neyta kókaíns.
Á öðrum myndum, teknar á sama stað, er hægt að greina andlit Maradona þar sem hann virðist nakinn við hliðina á tvíbreiðu rúmi, með tveimur ónafngreindum vinum sínum.
Á myndinni hér til vinstri sést Maradona, upp í rúmi og horfir á nakta konu, sem er væntanlega fyrrnefnd kærasta hans, Adonay Frutos.
Athugasemdir