fös 06. febrúar 2015 23:19
Brynjar Ingi Erluson
Fótbolta.net mótið B-deild: Magnús Ingi með tvö í sigri Selfyssinga
Magnús Ingi Einarsson skoraði tvö mörk fyrir Selfoss
Magnús Ingi Einarsson skoraði tvö mörk fyrir Selfoss
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss 5 - 3 Grótta
1-0 Þorsteinn Daníel Þorsteinsson ('41 )
2-0 Magnús Ingi Einarsson ('53 )
3-0 Magnús Ingi Einarsson ('59 )
3-1 Sturlaugur Haraldsson ('60 )
4-1 Birkir Pétursson ('62 )
4-2 Andri Björn Sigurðsson ('68 )
5-2 Haukur Ingi Gunnarsson ('82 )
5-3 Viktor Smári Segatta ('90 )

Selfossl lagði Gróttu að velli með fimm mörkum gegn þremur í B-deild Fótbolta.net mótsins í kvöld en Selfoss tryggði sér þar með þriðja sæti deildarinnar.

Þorsteinn Daníel Þorsteinsson kom Selfyssingum yfir undir lok fyrri hálfleiks áður en Magnús Ingi Einarsson bætti við öðru í byrjun síðari hálfleiks.

Hann bætti við þriðja markinu svo áður en Sturlaugur Haraldsson minnkaði muninn. Birkir Pétursson gerði þá fjórða mark Selfyssinga rétt áður en Andri Björn Sigurðsson minnkaði muninn aftur fyrir Gróttu.

Haukur Ingi Gunnarsson skoraði svo fimmta og síðasta mark Selfyssinga í leiknum áður en Viktor Smári Segatta klóraði í bakkann fyrir Gróttu.

Lokatölur 5-3 og Selfoss búið að tryggja sér þriðja sæti B-deildarinnar þetta árið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner