Þróttur hefur fengið miðju og varnarmanninn Davíð Þór Ásbjörnsson í sínar raðir frá Fylki.
Davíð Þór hefur undanfarin ár verið í skóla í Bandaríkjunum og ekki náð heilu tímabili með Fylki síðan sumarið 2012.
Davíð spilaði sjö deildar og bikarleiki með Fylkismönnum á síðasta tímabili.
Hann hefur nú fengið leikheimild með Þrótti en liðið mætir Þór í fyrstu umferðinni í 1. deild þann 9. maí næstkomandi.
Davíð er 23 ára gamall en hann hefur skorað fimm mörk í 68 deildar og bikarleikjum með Fylki á ferli sínum.
Hann hefur spilað 15 leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Athugasemdir