Fernandes í stað Fernandes? - Owen vill Alonso - Chelsea leitar til systurfélagsins - Ítalskur bakvörður til Liverpool? - Arsenal í baráttuna um Gordon
   lau 21. nóvember 2015 17:15
Magnús Már Einarsson
Myndband: Blysi hent í Alfreð Finnbogason
Alfreð fær blysið í sig.
Alfreð fær blysið í sig.
Mynd: Twitter
Allt er að verða vitlaust í Grikklandi fyrir grannaslag Panathinaikos og Olympiakos sem hefst klukkan 17:30.

Leikmenn Olympiakos fengu að finna fyrir því hjá stuðningsmönnum Panathinaikos þegar þeir fóru að skoða völlinn fyrir leik.

Stuðningsmenn Panathinaikos hentu blysum í átt að leikmönnum Olympiakos og Alfreð Finnbogason fékk eitt af blysunum í sig.

Alfreð er mættur aftur til Grikklands eftir að hafa skorað í tveimur leikjum í röð með íslenska landsliðinu.

Alfreð hefur ekki átt fast sæti hjá Olympiakos á tímabilinu en liðið hefur unnið tíu fyrstu leiki sína á tímabilinu.

Hér að neðan má sjá myndband af því þegar Alfreð fær blysið í sig en það gerist eftir rúmar 40 sekúndur.



Slapp
banner