Íslenska kvennalandsliðið tapaði 2-1 fyrir Noregi í Valhöll í Noregi í dag. Dagny Mellgren skoraði bæði mörk Norðmanna í sitthvorum hálfleiknum en Nína Ósk Kristinsdóttir náði að jafna leikinn 1-1 í síðari hálfleik. Með sigrinum tryggði Noregur sér sæti á EM með því að sigra Ísland samtals 9-3 en eins og flestir vita þá fór fyrri leikurinn í Egilshöll 7-2 fyrir Noreg.
Athugasemdir