Við hér á Fótbolti.net stóðum fyrir kosningu á besta fótboltamanni heims í nóvembermánuði. Við ætlum að birta greinar um 24 efstu í kosningunni, einn á dag fram að jólum, og endum á besta leikmanni heims að mati lesenda síðunnar sem verður kynntur á aðfangadag. Í dag verður þriðji leikmaður listans kynntur, sá sem hafnaði í 22.sæti.
22. Edgar Davids
Edgar Davids fæddist þann þrettánda mars árið 1973 í Paramaribo í Súrinam og er hann því 31 árs í dag. Davids er aðeins 169 sentímetrar á hæð og 68 kíló en þessi miðjumaður er mikill baráttuhundur og gefst hann aldrei upp. Marcelo Lippi núverandi landsliðsþjálfari Ítala gaf honum meðal annars gælunafnið "bolabíturinn" þegar að þeir voru báðir hjá Juventus.Davids er ekki með lítið sjálfstraust og áður en að hann "meikaði" það í fótboltanum hitti hann Richard Krajicek á bar en Kraijicek varð síðar Wimbledon meistari í Tennis. Davids heilsaði Kraijicek á þennan veg ,,Hæ, ég er Edgar Davids og þú munt heyra mikið meira um mig."
Davids kom upp í hinu fræga unglingstarfi Ajax. Tímabilið 1991-1992 var hann í liði Ajax sem að sigraði Evrópukeppni Félagsliða. Hann vann þrjá deildarmeistaratitla með liðinu í Hollandi og svo var hann í liðinu sem að sigraði AC Milan 1-0 í úrslitaleik Meistaradeildarinnar tímabilið 1994-1995 þar sem að Patrick Kluivert skoraði sigurmarkið.
Tímabilið 1997-1998 átti Davids stóran þátt í því að Juventus vann sigur í Serie A. Hann hélt áfram að vera fastamaður í liði Juventus næstu árin en árið 2001 komst hann í fréttirnar af leiðinlegum ástæðum.
Féll á lyfjaprófi:
Eftir leik gegn Udinese árið 2001 var Davids tekið í hefbundið lyfjapróf. Hann féll á því en nandrolone fannst í blóði hans. Davids hélt því allan tímann fram að hann væri saklaus og sagði meðal annars ,,Ég tek ekki einu sinni lyf þegar að ég er með flensu."
Davids kom tvíefldur til baka og hann vann Serie A í þriðja skiptið með Juventus tímabilið 2002-2003. Hann lék einnig fimmtán leiki í Meistaradeildinni með liðinu á sama tímabili þegar að það komst í úrslit en tapaði fyrir AC Milan í vítaspyrnukeppni. Á síðasta leiktímabili datt Davids út úr liðinu hjá Juventus og aðallega vegna þess að samningur hans rann út síðasta sumar og hann vildi ekki skrifa undir nýjan samning.
Í janúar var hann lánaður til Barcelona og lék hann átján leiki með liðinu sem að endaði í öðru sæti í La Liga eftir lélega byrjun í deildinni. Í sumar vildu nokkur lið fá Davids en hann ákvað að ganga til liðs við Inter Milan. Þar hefur hann ekki náð að festa sig í sessi og situr löngum stundum á varamannabekk liðsins.
Vesen til að byrja með í hollenska landsliðinu:
Davids lék sinn fyrsta landsleik fyrir Holland í apríl árið 2004 þegar að liðið tapaði 1-0 gegn Írum. Á EM 1996 í Englandi var Davids sendur heim fyrir að gagnrýna Guus Hiddink þáverandi landsliðsþjálfara Hollendinga á opinberum vettvangi. Davids var allt annað en sáttur og sakaði reyndari menn í liðinu vera með samsæri gegn sér.
Notar gleraugu vegna gláku:
Davids notar hífðargleraugu þar sem að hann fór í aðgerð árið 1999 vegna gláku í hægri auga en það er sjúkdómur sem að getur gert menn sjónskerta og jafnvel blinda.
Fyrir leik með hollenska landsliðinu þegar að Davids var að nota hlífðargleraugun í eitt af fyrstu skiptunum sagði varnarjaxlinn Jaap Stam við hann ,,Komdu Edgar, við erum að spila fótbolta, það er ekki tími til að fara á skíði." Ekki var Davids ánægður með þetta og reifst við Stam en Davids er eins og fyrr segir ekki sá rólegasti og hefur hann fengið nokkur rauð spjöld á ferlinum. Hann fékk meðal annars tvö rauða spjöld í sömu vikunni eitt sinn.
Davids er heldur ekki rólegur utan vallar og hefur oft komist í hann krappan þar. Fyrir nokkrum árum var hann kærður fyrir að lumbra aðeins á fyrrverandi eiginkonu sinni. Tveir þjófar sem að reyndu að ræna hann þegar að hann var á Porsche bíl sínum í Milan fengu að kenna á því en þrátt fyrir að vera lítill þá tók Davids sig til og tók vel á þjófunum.
Davids var tekinn fastur fyrir ölvun í London síðastliðið sumar og þá lenti hann upp á kant við fyrrum félaga sinn hjá AC Milan á sínum tíma en sagðist aðeins hafa verið í sjálfsvörn. Í síðasta mánuði réðist Davids svo á ljósmyndara eins og lesa má um hér.
Þessi hárprúði miðjumaður mun vonandi halda áfram að skemmta mönnum um ókomna tíð og þá verður hann vonandi í fréttum fyrir góða hluti innan vallar frekar en slæma hluti utan vallar.
Sjá einnig:
Nr. 23: Kaká (AC Milan)
Nr. 24: Michael Owen (Real Madrid)
Athugasemdir