Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 16. júní 2016 12:00
Magnús Már Einarsson
Bestur í Inkasso: Íhugaði alvarlega að hoppa upp í næstu vél
Elfar Árni Aðalsteinsson - KA
Elfar Árni Aðalsteinsson.
Elfar Árni Aðalsteinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Þetta var hörkuleikur, það hjálpaði okkur mikið að fá mark í byrjun leiks sem varð til þess að Leiknismenn þurftu að koma framar á völlinn," segir Elfar Árni Aðalsteinsson, leikmaður KA, um 2-0 sigur liðsins á Leikni R. í Inkasso-deildinni um síðustu helgi.

Elfar er leikmaður umferðarinnar í Inkasso-deildinni en hann var potturinn og pannann í sóknarleik KA á sunnudaginn.

„Mér fannst við vera sterkari í fyrri hálfleik og vorum að ógna ágætlega. Í upphafi seinni hálfleiks missa þeir mann af velli sem kveikir aðeins í þeim, en við náðum að loka vel á þá og helstu tækifæri þeirra voru úr föstum leikatriðum. Svo þegar við setjum annað markið seint í leiknum þá náum við að drepa leikinn. Þannig við erum heilt yfir sáttir með spilamennskuna í leiknum og mjög ánægðir með að ná í sigur á þessum erfiða útivelli."

KA skaust á toppinn með sigrinum en liðið er með þrettán stig eftir sex umferðirþ
„Ég er þokkalega sáttur með byrjunina, það er varla annað hægt þar sem við erum efstir í augnablikinu. Stigasöfnunin hefur verið góð, við getum þó enn bætt spilamennsku okkar á ýmsum sviðum."

KA er með mjög sterkan leikmannahóp og félagið hefur fengið marga öfluga leikmenn í sínar raðir. Er pressan mikil á liðinu í sumar?

„KA hefur verið lengi í miðjuhnoði í 1. deildinni og stefnan er að gera betur í þeim málum. Það er okkar yfirlýsta markmið að komast upp þannig það má alveg líta á það sem pressu. Við erum með öflugt lið og gerum kröfu á okkur að berjast um þetta og reyna ná þessu markmiði," sagði Elfar en hann telur að liðið sé betra en í fyrra þegar KA endaði í 3. sæti deildarinnar.

„Já ég myndi segja það, við misstum mikilvæga leikmenn eftir síðasta tímabil en náðum að fylla ágætlega í þau skörð. Fyrir þetta tímabil var leikmannahópurinn líka klár í febrúar fyrir utan Guðmann sem kom í lok gluggans. Meðan í fyrra voru nokkrir leikmenn að týnast inn rétt fyrir mót. Þannig við höfum haft meiri tíma til að undirbúa okkur saman fyrir sumarið."

Hlé er í Inkasso-deildinni á meðan Ísland tekur þátt á EM en Elfar Árni er ánægður með það.

„Það er fínt að fá þetta EM hlé, það eru flestir Íslendingar með hugann við EM þannig mætingin og stemningin í kringum Inkasso deildina og öðrum deildum á Íslandi er ekki efst á baugi þessa dagana. Það gefur líka leikmönnum í deildinni tækifæri til að kíkja á stemninguna í Frakklandi," sagði Elfar Árni sem er ekki sjálfur í Frakklandi.

„Ég er ekki Í Frakklandi en eftir geðveikina í leiknum gegn Portúgal íhugaði ég reyndar alvarlega að hoppa upp í næstu vél til Frakklands með félögunum, en ég gat því miður ekki klárað það dæmi. Ég verð þá fyrstur í vélina fyrir næsta stórmót," sagði Elfar.

Verbúð 11 gefur verðlaun
Leikmaður umferðarinnar í Inkasso deild karla fær 15 þúsund króna gjafabréf frá veitingastaðnum Verbúð 11 sem og kassa af Pepsi Max.

Sjá einnig:
Bestur í 5. umferð - Ivan Bubalo (Fram)
Bestur í 4. umferð - Gunnar Örvar Stefánsson (Þór)
Bestur í 3. umferð - Jósef Kristinn Jósefsson (Grindavík)
Bestur í 2. umferð - Arnar Aðalgeirsson (Haukar)
Bestur í 1. umferð - Stefán Ómar Magnússon (Huginn)
Athugasemdir
banner
banner
banner