Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 19. ágúst 2016 13:00
Magnús Már Einarsson
Sigurður Egill spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Sigurður Egill Lárusson.
Sigurður Egill Lárusson.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Zlatan skorar þrennu samkvæmt spánni.
Zlatan skorar þrennu samkvæmt spánni.
Mynd: Getty Images
Milos Milojevic var með fjóra rétta þegar hann spáði í enska boltann um síðustu helgi.

Sigurður Egill Lárusson spáir í leikina að þessu sinni en hann skoraði bæði mörkin þegar Valur varð bikarmeistari um síðustu helgi. Sigurður Egill skoraði einnig tvívegis í 7-0 sigri Vals á Víkingi R. í gærkvöldi.



Manchester United 3 - 0 Southampton (19:00 í kvöld)
Þetta verður mjög auðveldur leikur fyrir mína menn í United. 3-0 sigur og Zlatan með þrennu.

Stoke 1 - 2 Manchester City (14:00 á morgun)
Aguero og Silva sjá um markaskorun fyrir City meðan verstu kaup sumarsins John Stones skorar sjálfsmark.

Burnley 1 - 4 Liverpool (14:00 á morgun)
Held að þetta verði gott ár fyrir Liverpool sem vinna þetta þægilega. Jói Berg klórar í bakkann með marki í lokin.

Swansea 2 - 1 Hull (14:00 á morgun)
Gylfi verður aðalmaðurinn í þessum leik.

Tottenham 2 - 0 Crystal Palace (14:00 á morgun)
Tottenham vinna þennan leik nokkuð sannfærandi. Erfiður vetur framundan hjá Palace sem fara niður.

Watford 0 - 2 Chelsea (14:00 á morgun)
Fýla ástríðuna í Conte og sem hann smitar inn í liðið. Þægilegur dagur á skrifstofunni hjá Chelsea. Costa með bæði.

WBA 0 - 2 Everton (14:00 á morgun)
Góður sigur hjá Everton sem gera kónginn í Hafnarfirðinum, Leif Garðars, sáttan.

Leicester 1 - 1 Arsenal (16:30 á morgun)
Jafntefli í hörkuleik. Einn af mínum uppáhalds leikmönnum í þessari deild Özil bjargar stigi fyrir Arsenal í lokin.

Sunderland 0 - 0 Middlesbrough (12:30 á sunnudag)
Steindauður leikur.

West Ham 2 - 1 Bournemouth (15:00 á sunnudag)
Payet reimir á sig markaskóna og klárar þennan leik fyrir West Ham.

Sjá einnig:
Milos Milojevic (4 réttir)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner