Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson stýra útvarpsþættinum Fótbolti.net sem var á dagskrá í dag. Nú er komin inn upptaka af þættinum í heild sinni á Vísi. Hlustaðu í spilaranum hér fyrir neðan.
Upptökur af öllum þáttum koma inn á Vísi
Upptökur af öllum þáttum koma inn á Vísi
Leikur Manchester United og Manchester City var til umfjöllunar enda var hann í gangi meðan á þætti stóð.
Leikurinn var svo gerður upp með Tryggva Páli Tryggvasyni á raududjoflarnir.is.
Guðmundur Steinarsson, sérfræðingur þáttarins, skoðaði leikina framundan í Pepsi-deildinni og þá var viðtal við Guðmann Þórisson, varnarmann KA. Akureyrarliðið er búið að tryggja sér sæti í Pepsi-deildinni.
Matthías Vilhjálmsson, leikmaður Rosenborgar í Noregi, var einnig á línunni.
Athugasemdir