Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fim 09. mars 2017 14:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða ÍBV 
Doktor Hjalti hættur þjálfun KFS eftir 25 ár - Einar tekur við
Hjalti Kristjánsson og Einar Kristinn Kárason við undirskrift í dag.
Hjalti Kristjánsson og Einar Kristinn Kárason við undirskrift í dag.
Mynd: Sigþóra Guðmundsdóttir
Hjalti Kristjánsson hefur ákveðið að hætta sem þjálfari KFS eftir að hafa stýrt liðinu samfleytt í 25 ár!

Einar Kristinn Kárason mun þjálfa lið KFS í næsta sumar og vera aðstoðarþjálfari hjá 2. flokki ÍBV. KFS leikur í 4. deild í sumar eftir að hafa fallið úr 3. deild í fyrra.

Einar hefur þjálfað yngri flokka hjá ÍBV undanfarin ár ásamt því að leika með KFS. Einar hefur núna lagt skóna á hilluna og einbeitir sér að þjálfun í sumar.

„Samstarfssamningur var einnig gerður milli KFS og ÍBV um starfið í kringum KFS og 2.flokks ÍBV," segir á heimasíðu ÍBV.

Hjalti Kristjánsson mun áfram sjá um alla umgjörð KFS. Hjalti er læknir úr Eyjum en hann hefur verið læknir U21 árs landsliðs karla í áraraðir.

Í fyrra bætti Hjalti eigið met sem elsti leikmaður í sögu Íslandsmótsins en hann kom þá inn á sem varamaður hjá KFS, 57 ára gamall!
Athugasemdir
banner
banner