Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 11. mars 2017 15:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikarinn: Sex marka jafntefli hjá Haukum og Gróttu
Björgvin Stefáns var með tvö mörk fyrir Hauka.
Björgvin Stefáns var með tvö mörk fyrir Hauka.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar 3 - 3 Grótta
1-0 Björgvin Stefánsson ('15 )
1-1 Agnar Guðjónsson ('22 )
1-2 Pétur Theódór Árnason ('27 )
2-2 Elton Renato Livramento Barros ('39 )
2-3 Markaskorara vantar ('57 )
3-3 Björgvin Stefánsson ('77 )

Haukar og Grótta gerðu jantefli í A-deild Lengjubikarsins í dag, en leikurinn fór fram í Reykjaneshöllinni.

Haukar komust yfir þegar korter var búið af leiknum með marki frá Björgvini Stefánssyni. Grótta svaraði þó með tveimur mörkum á stuttum tíma og voru þeir allt í einu komnir 2-1 yfir.

Elton Renato Livramento Barros, sem var drjúgur fyrir Hauka á síðasta tímabili, jafnaði fyrir Hafnarfjarðarliðið áður en flautað var til hálfleiks og staðan var 2-2 í hálfleik.

Liðin tvö settu sitt markið hvort í seinni hálfleiknum og lokatölur urðu 3-3 í þessum leik. Bæði lið hafa leikið þrjá leiki, Haukar eru með tvö stig og Grótta eitt.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner