Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 12. mars 2017 14:51
Kristófer Kristjánsson
Lengjubikarinn: Fylkir vann KR með marki í lokin
Ásgeir Örn Arnþórsson skoraði eina mark leiksins
Ásgeir Örn Arnþórsson skoraði eina mark leiksins
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fylkir 1 - 0 KR
1-0 Ásgeir Örn Arnþórsson ('88)
Nánar um leikinn

Fylkir tók á móti KR í Lengjubikarnum á Fylkisvelli í dag.

Þetta var þriðja umferð mótsins en Fylkir hafði ekki unnið í fyrstu tveimur leikjum sínum á meðan KR var með einn sigur og eitt jafntefli.

Það stefndi allt í markalaust jafntefli í Árbænum þangað til á 88. mínútu þegar Ásgeir Örn Arnþórsson kom heimamönnum yfir.

Fleiri urðu mörkin ekki og eru bæði lið nú með fjögur stig í öðrum riðli A-deildar. ÍBV trónir á toppi riðilsins með 7 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner