1. þáttur
Ítalski boltinn er nýtt Podcast í umsjón Björns Más Ólafssonar. Í hverjum þætti verður fjallað ítarlega um eitt ítalskt knattspyrnulið á Ítalíu. Verður farið yfir sögu félagsins, menningu og áhugaverðar staðreyndir.
Þá verður ryki dustað af gömlum kempum sem leikið hafa á Ítalíu svo að líka þeir sem fylgjast ekki með ítalska boltanum að staðaldri ættu samt að kannast við þá leikmenn sem fjallað er um.
Í fyrsta þættinum er fjallað um knattspyrnufélagið Palermo frá Sikiley. Verður fjallað um fyrrum forseta félagsins sem borðaði þjálfara, danskan leikmann sem setti upp nasistaleikrit með liðsfélögum sínum og síðan nokkrar nýlegar hetjur sem nýlega hafa klæðst bleika búning félagsins.
Hægt er að hlusta í spilaranum hér að ofan
Þú finnur Björn Má á Twitter undir @bjornmaro
Sjá einnig:
Hlustaðu gegnum Podcast forrit
Athugasemdir