Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 18. mars 2017 17:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikarinn: Almarr hetja KA gegn Haukum
Almarr tryggði KA sigur.
Almarr tryggði KA sigur.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KA 1 - 0 Haukar
1-0 Almarr Ormarsson ('80 )

KA hafði betur gegn Haukum í Lengjubikarnum í dag. Leikurinn fór fram í Boganum á Akureyri.

KA er nýliði í Pepsi-deildinni á meðan Haukar eru að fara inn í enn eitt tímabilið í Inkasso-deildinni. Það voru því flestir sem bjuggust við sigri norðanmanna í þessum leik.

Raunin varð sú, en eitt mark dugaði fyrir KA. Það gerði Almarr Ormarsson þegar tíu mínútur voru til leiksloka.

Sterkur sigur hjá KA, sem er núna öðru sæti Riðils 1 á eftir FH. Haukar eru í fimmta sætinu með tvö stig.

Byrjunarlið KA: Aron Dagur Birnuson (m), Baldvin Ólafsson, Callum Williams, Almarr Ormarsson, Steinþór Freyr Þorsteinsson, Elfar Árni Aðalsteinsson, Ásgeir Sigurgeirsson, Guðmann Þórisson, Darko Butalovic, Daníel Hafsteinsson, Archange Nkumu.

Byrjunarlið Hauka: Trausti Sigurbjörnsson (m), Aran Nganpanya, Gunnar Gunnarsson, Björgvin Stefánsson, Aron Jóhannsson, Arnar Aðalgeirsson, Gylfi Steinn Guðmundsson, Alexander Freyr Sindrason, Þórir Jóhann Helgason, Elton Renato Livramento Barros, Davíð Sigurðsson.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner