Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fös 24. mars 2017 22:47
Magnús Már Einarsson
Birkir Már: Fínt að fá semi úrslitaleik
Icelandair
Birkir fiskar vítaspyrnuna í kvöld.
Birkir fiskar vítaspyrnuna í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var svokallaður iðnaðarsigur," sagði bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson við Fótbolta.net eftir 2-1 sigur á Kósóvó í kvöld.

Birkir fiskaði vítaspyrnu í leiknum sem Gylfi Þór Sigurðsson skoraði úr.

Lestu um leikinn: Kosóvó 1 -  2 Ísland

„Mér fannst þetta vera pjúra víti en ég veit ekki hvernig þetta leit út í sjónvarpinu," sagði Birkir.

Kosóvó minnkaði muninn í 2-1 í síðari hálfleik eftir að Ísland hafði verið með þægilegt forskot í leikhléi. Síðari hálfleikurinn var ekki jafn góður hjá íslenska liðinu og sá fyrri.

„Óafvitandi slöppuðum við kannski af. Þeir voru vel peppaðir og fengu mark snemma. Þá varð þetta ströggl og við náðum ekki að halda boltanu. Við náðum samt stjórn á þessu þegar líða tók á seinni hálfleikinn."

Ísland er í 2. sæti eftir fyrri umferðina í riðli I og framundan er toppslagur gegn Króatíu á Laugardalsvelli þann 11. júní. Efsta sæti riðilsins gefur beint sæti á HM en 2. sætið fer í umspil.

„Það er fínt að fá svona semi úrslitaleik um að ná fyrsta sætinu. Síðast þegar við mættum þeim heima fór 0-0 og við erum betra lið núna. Við getum alveg tekið þá heima," sagði Birkir að lokum.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner