banner
banner
föstudagur 29. mars
Lengjubikar kvenna - A-deild úrslit
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 18. september
fimmtudagur 14. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
miðvikudagur 13. september
þriðjudagur 12. september
Undankeppni EM U21 landsliða
mánudagur 11. september
Undankeppni EM
sunnudagur 10. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
fimmtudagur 28. mars
CHAMPIONS LEAGUE: Playoffs - Women
Barcelona W - SK Brann W - 17:45
PSG (kvenna) - Hacken W - 20:00
Vináttulandsleikur
Argentina U-16 - Cote dIvoire U-16 - 17:30
Czech Republic U-16 - Mexico U-16 - 17:30
France U-16 - Saudi Arabia U-16 - 17:30
Japan U-16 - Wales U-16 - 17:30
banner
fös 21.apr 2017 12:45 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Af djamminu yfir í fremstu röð

„Maður hefði getað gert betur og kannski væri ég að spila annars staðar í dag en á Íslandi ef ég hefði verið með hausinn í lagi. Ef ég hefði nennt að mæta á aukaæfingar og sleppt djammi þá væri ég örugglega annars staðar en hér,“ segir Damir Muminovic varnarmaður Breiðabliks og sötrar á kaffibolla á skrifstofu Fótbolta.net.

,,Ég ætlaði alltaf að taka mig á en gerði það aldrei.  Ég var alltaf með vinum sem voru í þessu og ég var í ömurlegum félagskap.  Ég æfði alveg en þegar það kom helgi þá fór ég á djammið í stað þess að einbeita mér að næsta leik.“
,,Ég ætlaði alltaf að taka mig á en gerði það aldrei. Ég var alltaf með vinum sem voru í þessu og ég var í ömurlegum félagskap. Ég æfði alveg en þegar það kom helgi þá fór ég á djammið í stað þess að einbeita mér að næsta leik.“
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var mikið af fólki sem reyndi að hjálpa mér á þessum tíma en maður brást þeim alltaf.  Einn daginn hættu allir að reyna að hjálpa mér.  Ég skildi sjálfur ekki af hverju það var en ég er mjög þakklátur þessu fólki í dag.“
„Það var mikið af fólki sem reyndi að hjálpa mér á þessum tíma en maður brást þeim alltaf. Einn daginn hættu allir að reyna að hjálpa mér. Ég skildi sjálfur ekki af hverju það var en ég er mjög þakklátur þessu fólki í dag.“
Mynd/Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
„Ég þekkti flesta af þessum strákum.  Þeir gerðu grín að manni að ég væri tengdasonur Óla en það truflaði mig ekkert.  Ég var bara með mín markmið.
„Ég þekkti flesta af þessum strákum. Þeir gerðu grín að manni að ég væri tengdasonur Óla en það truflaði mig ekkert. Ég var bara með mín markmið.
Mynd/Heimasíða Breiðabliks
„Ég var 3-4 mánuði að átta mig á hlutunum.  Þeir voru á allt öðru leveli en við höfðum verið í Ólafsvík.  Þetta var mikið hátt og langt í Ólafsvík en svo kom maður í Breiðablik og vissi ekkert hvað maður átti að gera á æfingum.
„Ég var 3-4 mánuði að átta mig á hlutunum. Þeir voru á allt öðru leveli en við höfðum verið í Ólafsvík. Þetta var mikið hátt og langt í Ólafsvík en svo kom maður í Breiðablik og vissi ekkert hvað maður átti að gera á æfingum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mamma og pabbi skildu þegar ég var þriggja ára og ég hef ekkert séð hann né heyrt í honum síðan þá.  Ég veit ekkert hvar hann er í dag og ég hef sjálfur ekki leitast eftir því að finna hann.
„Mamma og pabbi skildu þegar ég var þriggja ára og ég hef ekkert séð hann né heyrt í honum síðan þá. Ég veit ekkert hvar hann er í dag og ég hef sjálfur ekki leitast eftir því að finna hann.
Mynd/Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Með fullt af tattúum - „Þetta er áhugamál. Ég held að ég hafi verið í níunda eða tíunda bekk þegar ég byrjaði að fá mér tattú og í dag er ég með tattú á öllum líkamanum.
Með fullt af tattúum - „Þetta er áhugamál. Ég held að ég hafi verið í níunda eða tíunda bekk þegar ég byrjaði að fá mér tattú og í dag er ég með tattú á öllum líkamanum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Maður getur ekki gert hluti sem maður gerði áður en barnið kom. Maður hefur þroskast mikið. Ég er rólegri og hugsa meira um barnið en eitthvað annað.“
„Maður getur ekki gert hluti sem maður gerði áður en barnið kom. Maður hefur þroskast mikið. Ég er rólegri og hugsa meira um barnið en eitthvað annað.“
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Damir í búningi Partizan Belgrad en það er lið hans í Serbíu.
Damir í búningi Partizan Belgrad en það er lið hans í Serbíu.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég fékk nokkur símtöl því sumir héldu að maður hefði farið á djammið og gert allt vitlaust eins og þegar maður var yngri.  Þetta var alls ekki þannig.  Þetta er bara búið og það þarf ekki að ræða það meira.“
,,Ég fékk nokkur símtöl því sumir héldu að maður hefði farið á djammið og gert allt vitlaust eins og þegar maður var yngri. Þetta var alls ekki þannig. Þetta er bara búið og það þarf ekki að ræða það meira.“
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég veit hvað mig langar að gera.  Ég er kominn á þann aldur að ég vil vinna eitthvað.  Það er þreytt að vera í öðru eða þriðja sæti og elta FH og KR ár eftir ár.
„Ég veit hvað mig langar að gera. Ég er kominn á þann aldur að ég vil vinna eitthvað. Það er þreytt að vera í öðru eða þriðja sæti og elta FH og KR ár eftir ár.
Mynd/Ingólfur Hannes Leósson
Damir er í dag orðinn einn öflugasti varnarmaðurinn í Pepsi-deildinni en ferill hans er hins vegar talsvert öðruvísi en hjá flestum öðrum leikmönnum deildarinnar. Damir var byrjaður að spila í efstu deild þegar hann var 18 ára gamall. Hann lék þá bæði sem bakvörður og miðjumaður í liði HK sem féll úr deildinni. Í kjölfarið tóku við furðulegir tímar á ferli Damir því ári síðar spilaði hann í neðstu deild með Ými, varaliði HK.

„Það var ekki af því að ég var lélegur í fótbolta heldur af því að maður var að gera eitthvað annað en að hugsa um fótboltann. Ég var í ömurlegum vinahóp sem dró mig í djamm og eitthvað rugl,“ segir Damir.

„Ég ætlaði alltaf að taka mig á en gerði það aldrei. Ég var alltaf með vinum sem voru í þessu og ég var í ömurlegum félagskap. Ég æfði alveg en þegar það kom helgi þá fór ég á djammið í stað þess að einbeita mér að næsta leik.“

„Ég gerði allt sem ég gat til að sleppa við útihlaup og ræktina. Ég laug því kannski að ég væri að vinna og mætti ekki. Ég hélt að sem fótboltamaður þá myndi maður bara mæta á æfingar til að spila fótbolta og hitt skipti ekki máli.“

Fannst fínt að vera í 3. deildinni
Damir var byrjaður að djamma þegar hann lék með HK í efstu deild 2008 en það sumar var hann meðal annars settur í agabann. Hann var síðan sáttur að leika með Ými árið eftir.

„Maður mátti gera allt sem maður vildi þar. Ég hugsaði meira að segja af hverju ég fór ekki fyrr í Ými. Mér fannst fínt að vera í 3. deildinni,“ sagði Damir en frá 2009 til 2011 spilaði hann með HK og Ými til skiptis auk þess sem hann fór á Blönduós árið 2010 á láni til Hvöt.

„Ég var að flakka á milli HK og Ýmis. Ég ætlaði alltaf að taka mig á en það gerðist aldrei. Stundum tók ég mig á í einn mánuð en svo nennti ég því ekki lengur,“ útskýrir Damir.
„Maður hefur þroskast mikið og þegar ég lít til baka þá sé ég eftir ýmsum hlutum.“
Þjálfarar HK á þessum árum vissu strax af því ef Damir beygði út af sporinu og fór á djammið á tímum þar sem það mátti ekki. „Þjálfararnir vissu þetta yfirleitt daginn eftir. Þeir skömmuðu mig en ég hlustaði aldrei á þá. Mér fannst þeir hafa rangt fyrir sér. Maður hefur þroskast mikið og þegar ég lít til baka þá sé ég eftir ýmsum hlutum.“

„Það var mikið af fólki sem reyndi að hjálpa mér á þessum tíma en maður brást þeim alltaf. Einn daginn hættu allir að reyna að hjálpa mér. Ég skildi sjálfur ekki af hverju það var en ég er mjög þakklátur þessu fólki í dag.“


Óli Kristjáns lagði orðspor sitt undir
Árið 2012 urðu kaflaskil í lífi og í fótboltaferlinum hjá Damir. „Ég kynntist stelpu árið 2012 og stjúppabbi hennar tók mig aðeins í gegn. Síðan þá hefur leiðin bara legið upp á við.“

Stjúppabbinn er Ólafur Kristjánsson, núverandi þjálfari Randers og fyrrum þjálfari Breiðabliks. Fyrir tilstuðlan Ólafs fór Damir í Leikni R. fyrir sumarið 2012 og um leið hófst uppsveifla á fótboltaferli hans.

„Willum (Þór Þórsson, þáverandi þjálfari Leiknis) og Óli hittust og Willum hafði mikinn áhuga á að fá mig. Óli sagði þetta við mig og sagði að það eina sem væri að stoppa þetta væri djammið á mér. Óli settist niður með mér og sagðist vera að leggja orðspor sitt undir fyrir mig. Við vorum sammála því að það væri kominn tími fyrir mig til að þroskast aðeins.“

Damir spilaði með Leikni sumarið 2012 og í kjölfarið vildi hann prófa að spila aftur í efstu deild. „Eftir árið hjá Leikni langaði mig að fara í Breiðablik. Óli sagði að ég væri ekki alveg tilbúinn í það. Hann sagði að það væri ekki gott fyrir mig og að það væri ekki gott fyrir hann út af tengslum okkar.“
„Ég þekkti flesta af þessum strákum. Þeir gerðu grín að manni að ég væri tengdasonur Óla en það truflaði mig ekkert. Ég var bara með mín markmið“
Úr varð að Damir gekk til liðs við Víking Ólafsvík sem var nýliði í Pepsi-deildinni. Damir hitti Ejub Purisevic, þjálfara Ólsara, og leist vel á hugmyndir hans. Damir spilaði með Víkingi þegar liðið féll úr Pepsi-deildinni 2013 en svo gekk hann í raðir Breiðabliks.

„Þetta var frábært fyrir mig. Það besta sem gat gerst fyrir mig var síðan að fara í Breiðablik árið eftir og spila undir stjórn Óla og síðan Adda núna,“ sagði Damir en hvernig var fyrir hann að koma inn í hópinn hjá Breiðabliki undir stjórn Ólafs?

„Ég þekkti flesta af þessum strákum. Þeir gerðu grín að manni að ég væri tengdasonur Óla en það truflaði mig ekkert. Ég var bara með mín markmið,“ sagði Damir sem var í nokkra mánuði að komast inn í hlutina hjá Breiðabliki.

„Ég var 3-4 mánuði að átta mig á hlutunum. Þeir voru á allt öðru leveli en við höfðum verið í Ólafsvík. Þetta var mikið hátt og langt í Ólafsvík en svo kom maður í Breiðablik og vissi ekkert hvað maður átti að gera á æfingum. Þegar ég kom fyrst gat ég ekkert á æfingum og strákarnir hafa sagt mér núna að þeir hugsuðu þá ´hvað vorum við að fá þennan gæa?“

Ekki heyrt frá föður sínum í 23 ár
Damir hafði áður mætt á æfingu hjá Breiðabliki en það var á hans yngri árum. „Ég byrjaði í Stjörnunni hjá Dragi Pavlov. Síðan fór ég í Breiðablik í tvær vikur en það var svo mikið af útihlaupum þar að ég ákvað að fara í HK,“ sagði Damir og hló.

Damir flutti tíu ára gamall til Íslands. Boban Ristic, bróðir mömmu Damirs, spilaði þá fótbolta á Íslandi en hann lék á ferli sínum með KVA, Stjörnunni, Víkingi R, Aftureldingu og Hamri. Móðir Damir fékk vinnu á Íslandi í gegnum Boban og úr varð að hún flutti ásamt Damir. Damir er einkabarn en hann hefur ekki heyrt í föður sínum síðan í æsku.

„Mamma og pabbi skildu þegar ég var þriggja ára og ég hef ekkert séð hann né heyrt í honum síðan þá. Ég veit ekkert hvar hann er í dag og ég hef sjálfur ekki leitast eftir því að finna hann,“ segir Damir en hvernig var að alast upp föðurlaus?

„Þetta er skrýtið. Maður getur ekkert leitað til pabba og þá leitar maður til frænda síns. Þetta truflar mig ekkert núna en það gerði það kannski þegar ég var yngri. Ef pabbi hefði verið til staðar þá hefði ég kannski ekki farið að djamma svona mikið til dæmis,“ segir Damir en Boban frændi hans hefur hjálpað honum mikið. „Hann var eins og pabbi minn. Hann hefur séð um mig síðan ég var lítill og ég á honum mikið að þakka sem og mömmu.“

Fær sér tattú í Serbíu og á Íslandi
Damir er einmitt með tattú af móður sinni en húðflúrin eru ófá á líkama hans. „Þetta er áhugamál. Ég held að ég hafi verið í níunda eða tíunda bekk þegar ég byrjaði að fá mér tattú og í dag er ég með tattú á öllum líkamanum. Ég ætla að bæta meira í og ég ætla í full body sleeve. Ég fer á mánaðar fresti í tattú þegar tímabilið er ekki í gangi og svo geri ég oft eitthvað þegar ég er úti í Serbíu,“ segir Damir en hann fer árlega til Serbíu í frí. Hann fer þá í gamla heimabæinn, sem er 30 þúsund manna bær en það þykir afar lítið á serbneskan mælikvarða.

„Ég reyni að fara þangað í mánuð eftir tímabil. Það er mjög fínt að kúpla sig aðeins út úr fótboltanum. Það eru 25 gráðu hiti þarna í október. Á sumrin er 45 stiga hiti og þeim finnst vera kalt þegar ég mæti þarna í október og er liggjandi í sólbaði.“

„Það er mikil fátækt þarna úti. Vinir mínir úti eru ekki með neina vinnu. Þeir hættu í skóla í 8. bekk og nenna ekki að gera neitt auk þess sem það er lítið af vinnu í boði. Þeir búa hjá mömmu sinni og pabba og lifa á þeim. Þetta er öðruvísi en hér.“


Þroskaðist mikið eftir að hann varð pabbi
Damir hefur fylgst með fótboltanum í Serbíu en þar er Partizan Belgrad hans lið. Gríðarlegur rígur á milli Partizan Belgrad og Rauðu Stjörnunnar þar í landi. „Þetta er svakalegt. Það eru alltaf flugeldar í stúkunni og slagsmál,“ útskýrir Damir og bætir við að það geti líka verið læti í neðri deildunum. „Ég fór líka á leik í þriðju eða fjórðu deildinni í fyrra. Það voru slagsmál og það var verið að kasta steinum og eitthvað. Maður forðaði sér bara í burtu.“

Damir segir að líf sitt sé allt öðruvísi í dag heldur en á árum áður. Hann er orðinn faðir en dóttir hans kom í heiminn fyrir tveimur og hálfu ári síðan. „Maður getur ekki gert hluti sem maður gerði áður en barnið kom. Maður hefur þroskast mikið. Ég er rólegri og hugsa meira um barnið en eitthvað annað.“
„Það voru mistök af okkar hálfu að fara út á tónleika þegar það voru þrír dagar í leik en við vorum ekki að drekka eða eitthvað.“
Þrátt fyrir rólegri lífsstíl þá var Damir settur í agabann í 20. umferð Pepsi-deildarinnar í fyrra ásamt liðsfélaga sínum Gísla Eyjólfssyni. Damir segir að agabannið hafi ekki verið vegna drykkju.

„Það voru mistök af okkar hálfu að fara út á tónleika þegar það voru þrír dagar í leik en við vorum ekki að drekka eða eitthvað. Þetta var mjög pirrandi. Ég fékk nokkur símtöl því sumir héldu að maður hefði farið á djammið og gert allt vitlaust eins og þegar maður var yngri. Þetta var alls ekki þannig. Þetta er bara búið og það þarf ekki að ræða það meira.“

Damir fær nýjan liðsfélaga í hjarta varnarinnar hjá Breiðabliki í sumar þar sem Elfar Freyr Helgason er farinn til Horsens á láni. Viktor Örn Margeirsson fær nú sénsinn í byrjunarliðinu. „Ég er ánægður fyrir hönd Ella og sömuleiðis fyrir hönd Viktors. Hann er mjög góður og á að skilið að spila. Hann hefur verið á bekknum í tvö ár en fær núna að grípa tækifærið,“ segir hinn 26 ára gamli Damir en hann er orðinn næstelsti leikmaðurinn í hópnum hjá Blikum.

„Maður fær meiri ábyrgð núna heldur en í fyrra og hitteðfyrra. Ungu strákarnir eru farnir að hlusta meira á mann. Þeir mega samt hlusta ennþá meira. Það er erfitt að kenna þeim,“ segir Damir brosandi en hann setur markið hátt í sumar.

„Ég veit hvað mig langar að gera. Ég er kominn á þann aldur að ég vil vinna eitthvað. Það er þreytt að vera í öðru eða þriðja sæti og elta FH og KR ár eftir ár. Ég vil sjálfur klárlega gera betur en ég gerði í fyrra og vonandi komast eitthvað út ef það er hægt. Draumurinn er að fara út en ég er þannig að ef það gerist þá gerist það. Það truflar mig heldur ekki að vera heima áfram,“ sagði þessi sterki varnarmaður að lokum.

Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net - 5. sæti: Breiðablik
Arnar Grétars: Reynum að gera atlögu að titlum
Hin hliðin - Gísli Eyjólfsson (Breiðablik)
Athugasemdir
banner
banner
banner